Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land á morgun. Lögreglan í Vestmannaeyjum varar íbúa við því að spáð sé veðrið verði verst í bænum í fyrramálið um það leyti sem að skólastarf í bænum hefst og því sé best fyrir íbúa að sýna aðgát.Gul viðvörun er í gildi fyrir Suðurland og þar með talið Vestmannaeyjar frá klukkan 5 til 11 og í viðvöruninni segir að hvassast verði syðst. Samkvæmt vef veðurstofunnar er spáð 28 metrum á sekúndu í meðalvind á Stórhöfða klukkan 8 í fyrramálið.
Hvetja Eyjamenn til að fara að öllu með gát í fyrramálið þegar skólastarf hefst