Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er gagnrýnin á ummæli Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem hann lét falla í Spursmálum Morgunblaðsins. Þar sagði hann að þegar bankanum þótti ólíklegt að geta ekki lækkað verðbólgu undir markmið kjarasamninga gæti bankinn búið til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp samningum.
„Mér finnst þetta sérstök nálgun, svo ekki sé meira sagt,“ sagði Hanna Katrín í Kastljósi í kvöld.
Hún segist ekki hafa orðið vör við þessa hugsun í samtölum í aðdraganda þess að samningar voru tryggðir áfram. Hún vildi þó tjá sig um það hvort að með þessu væri Seðlabankinn kominn út fyrir verksvið sitt.
Horfa má á þáttinn í spilaranum hér að neðan en Hanna Katrín ræddi einnig laxeldi í Seyðisfirði, fyrirhugað innviðagjald á ferðamannastöðum og fleira.