Hámarkstími nýrra verðtryggðra fasteignalána styttist úr 40 árum í 25 samkvæmt áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda. Það er í samræmi við tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á neytendalán og eldri frumvörp.
Styttur lánstíminn á að tryggja að höfuðstóll hækki ekki á neinu tólf mánaða tímabili lánstímans miðað við meðalvexti nýrra verðtryggðra lána hjá lánastofnunum undanfarinn áratug miðað við að verðbólga sé við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Fjármálaráðuneytið hefur í bígerð að leggja fram frumvarp þessa efnis þar sem jafnframt verði veiting lána með sambærilega eiginleika og verðtryggð lán takmörkuð.
Í frumvarpinu verði mælt fyrir um hámark þess hversu mikill annar kostnaður en verðbætur megi reglulega leggjast á höfuðstól fasteignalána. Það þýðir að ekki megi hækka nafnvirði eftirstöðva vegna vaxta eða annars kostnaðar á höfuðstólinn umfram ákveðið hlutfall á hverju ári.
Verðtryggð fasteignalán eru þau einu sem njóta nokkurrar útbreiðslu meðal neytenda hér á landi þar sem kostnaður er reglubundið lagður við höfuðstól þannig að eftirstöðvar fara hækkandi á hluta lánstímans. Áformað er að lögin taki gildi 1. janúar 2027.