Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir

Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir

Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir

Umræddir frambjóðendur eru þau Thomas H. Kean Jr. og Miller-Meeks en þau sitja bæði í fulltrúadeildinni fyrir kjósendur í New Jersy annars vegar og Iowa hins vegar. Samkvæmt heimildum New York Times benda innri kannanir Repúblikanaflokksins til þess að þau séu ólíkleg til að halda sætum sínum.

Því munu aðgerðanefndirnar ekki fjármagna lengur auglýsingar fyrir þessa frambjóðendur.

Ákvarðanirnar þykja til marks um að forsvarsmenn þessara aðgerðanefnda sjái betri tækifæri annars staðar til að reyna að halda meirihluta í fulltrúadeildinni, eða í það minnsta draga úr stærð meirihluta Demókrataflokksins.

Eiga mun meiri peninga en Demókratar

Kannanir benda til þess að Demókratar gætu komið verulega vel út úr kosningunum. Þeir þykja líklegir til að ná meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og eiga einnig séns á að ná tökum á öldungadeildinni. Nokkuð minni líkur eru þó á því, miðað við kannanir.

Donald Trump mælist gífurlega óvinsæll. Hækkandi verðlag og óvinsældir stríðsins gegn Íran virðast einnig ætla að koma verulega niður á Repúblikönum.

Áhyggjur Repúblikana hafa að miklu leyti snúist um að kjósendur flokksins hafi lítinn áhuga á að mæta á kjörstað og á það sérstaklega við um unga menn. JD Vance, varaforseti, hefur tekið að sér að reyna að fá þá til að mæta.

Sjá einnig: Vance biðlar til ungra reiðra manna

Það er þó á einu sviði sem Repúblikanar hafa forskot á Demókrata og það er á peningasviðinu. Repúblikanar hafa safnað mun meiri peningum en Demókratar, heilt yfir, þótt ýmsir stakir frambjóðendur Demókrataflokksins hafi safnað miklum peningum.

Búinn að gefa tugi milljarða

Af þeim sem hafa lagt Repúblikönum til peninga stendur enginn framar en Elon Musk. Hann er eini billjónamæringur heimsins (í dölum talið) og auðugasti maður heims. Musk hefur gefið rúmlega 276 milljónir dala til frambjóðenda Repúblikanaflokksins í aðdraganda þingkosninganna í næsta mánuði eða frá því í byrjun júlí. Í krónum samsvarar það um 33,7 milljörðum króna.

AP-fréttaveitan segir að um 158 milljónir dala hafi farið til pólitískrar aðgerðanefndar (PAC) Repúblikana í öldungadeildinni sem kallast Senate Leadership Fund. Þetta ku vera eitt heimsins mesta framlag í stjórnmálasögu Bandaríkjanna.

Hann setti 76 milljónir dala í America PAC, sem er hans eigin aðgerðanefnd. Meðal annars hafa þessir peningar verið notaðir til að hvetja kjósendur Repúblikanaflokksins til að mæta á kjörstað, eins og Musk varði fúlgum fjár í fyrir forsetakosningarnar 2024.

Sjá einnig: Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi

Þá gaf Musk tíu milljónir dala til Lone Star Liberty, sem er aðgerðanefnd sem styður Ken Paxton, frambjóðanda Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarsætis Texas.

Báðir flokkar hafa dælt miklum peningum í þessa kosningabaráttu en hún er ein þeirra sem skipta sköpum fyrir Demókrata, eigi þeir að ná meirihluta í öldungadeildinni.

Eins og áður segir hefur Musk varið 276 milljónum dala í kosningabaráttuna frá því í júlí. Frá forsetakosningunum í lok árs 2024 hefur Musk í heildina gefið Repúblikönum alls 366 milljónir dala, samkvæmt grein New York Times.

366 milljónir dala samsvara um 44,7 milljörðum króna.

Það er mun meira en hann gerði fyrir forsetakosningarnar síðustu en þá gaf Musk Trump og Repúblikönum alls um 290 milljónir dala.

„Ég held ég sé búinn að gera nóg“

Eftir að hann lagði Repúblikönum gífurlega mikið til í forsetakosningunum 2024 og studdi Trump í að verða aftur forseti, tók Musk að sér það hlutverk að skera niður hjá hinu opinbera í Bandaríkjunum. Var stofnað sérstakt embætti sem kallaðist DOGE sem hann átti að nota til þess.

Þessi vinna Musks var verulega óvinsæl meðal Bandaríkjamanna og virðist litlum árangri hafa skilað í formi niðurskurðar. Þá leiddu störfin til mótmæla gegn honum og Tesla, bílafyrirtæki hans, og hafði hið pólitíska andrúmsloft kringum hann mikil áhrif á rekstur Tesla víða um heim.

Sjá einnig: Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina

Í kjölfarið lýsti Musk því yfir opinberlega að hann ætlaði að draga úr fjárútlátum til stjórnmálamanna og vegna málefna sem honum eru hugfangin.

„Ég held ég sé búinn að gera nóg.“

Musk tók þó fram að honum gæti snúist hugur og virðist hafa farið svo, ef marka má þessi gífurlega miklu framlög á undanförnum mánuðum.

Seinna árið 2025 hóf Musk að deila mjög við Trump en síðan þá hafa þeir bætt sambandið aftur.

#með #milljarða #repúblikana #styður #tugum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947801d/stydur-republikana-med-tugum-milljarda

📰 Aðrar fréttir

Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
Kennararnir Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson voru í viðtali í Bítinu í morgun þar sem þau fóru yfir málið. Þar kom fram að starfsmennt...
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
📅 13.10.2026 👁️ 1
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
Forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarr...
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
📅 13.10.2026 👁️ 1
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
Um 200 þúsund manns tóku þátt í mótmælum til stuðnings bættum kjörum framhaldsskólanema í Frakklandi í dag. Harka tók að færast í leikinn síðdegis og ...
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
📅 13.10.2026 👁️ 1
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
Norðanstormur skellur á landinu á morgun og verða gular og appelsínugular viðvaranir víða í gildi. Rætt var við Birtu Líf Kristinsdóttur, veðurfræðing...
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
📅 13.10.2026 👁️ 1
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
William Chapman was attacked by the tiger after he entered its pen at Yorkshire Wildlife Park.
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
📅 13.10.2026 👁️ 1
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum síðustu vikur og mánuði við verkið, sem er umfangsmikið og vandasamt enda er þakið oft nefnt sem eitt af frægustu...
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
📅 13.10.2026 👁️ 1
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
Prosecutors say the device, wrapped in toilet paper, was found inserted in a USB port on the back of a TV in an executive conference room.
Leó páfi með lungnakrabbamein
📅 13.10.2026 👁️ 2
Leó páfi með lungnakrabbamein
Leó páfi fjórtándi gekkst undir skurðaðgerð á lunga fyrr í dag til að fjarlægja krabbamein. Meinið hafði fundist við reglubundna læknisskoðun, samkvæm...
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
Borunum til gullleitar í Þormóðsdal er lokið í bili. Fyrirtækið Aurania Resources segir rannsóknirnar vekja vonir.DV greindi frá því þann 9. september...
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
Fyrr í dag var greint frá því að aðgerðin hefði gengið að óskum en þá hafði ekki verið upplýst hvort hnútur sem fannst í lunga páfa væri illkynja. Í y...
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
📅 13.10.2026 👁️ 1
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er gagnrýnin á ummæli Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem hann lét falla í Spursmálum Morgun...
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Vísis um lengingu Vikunnar og auglýsingahlé í þættinum. Stefán segir auglýsi...
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
📅 13.10.2026 👁️ 1
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa. Kókaíninnflutningur til álfunnar hefur margfaldas...
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
Skotið var á Shakur úr bíl í Las Vegas 7. september 1996. Hann var 25 ára og einn áhrifamesti rappari heims þegar hann lést. Kviðdómur sakfelldi Davis...
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
Samkvæmt tilkynningu frá HHÍ gaf móðir konunnar henni miðann þegar hún var barn og hún hefur átt hann alla tíð síðan. Hún hafði raunar sagt móður sinn...
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
„Ég held að allir aðilar sem komu að þessum kjarasamningum geti verið stoltir af niðurstöðunni. Forsvarsmenn Breiðfylkingarinnar eru með stór mál inni...
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
Eva Dögg er 42 ára listrænn stjórnandi, hönnuður og frumkvöðull og stofnaði fyrirtækin L’Atelier Alba, The Face Ritual Method og RVK Ritual. Stefán Da...
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
📅 13.10.2026 👁️ 2
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur greint frá kerfisbundnu ofbeldi og misnotkun kvenna í viðkvæmri stöðu, t.d. með andlegar skerðingar, af há...
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
Forsætisráðherra segist sjá gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland í fyrirhuguðu innviða- og náttúrugjaldi. Hún segir fleiri staði e...
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
📅 13.10.2026 👁️ 3
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri fimleikafélagsins Bjarkar, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta tilkynnti hann foreldrum fyrir stuttu í gegnum a...
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
Páfi, sem er 71 árs, gekkst undir aðgerðina á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Hnúturinn fannst við reglulega læknisskoðun. „Aðgerðinni lauk farsælle...
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
📅 13.10.2026 👁️ 2
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
Bandaríska stuttþáttaröðin Band of Brothers kom út árið 2001, gerð af Steven Spielberg og Tom Hanks eftir samnefndri bók sagnfræðingsins Stephen E. Am...
Skuldar ekkert - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Skuldar ekkert - Vísir
„Það passar,“ segir Tryggvi Másson framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Flokkurinn hafi verið með veð í húsnæðinu Valhöll að Háaleiti...
Brýning Rubios
📅 13.10.2026 👁️ 3
Brýning Rubios
Brýning Rubios Fréttin13. október 2026Björn Bjarnason, Erlent, StjórnmálLeave a Comment Marco Rubio við Akrópólis. Björn Bjarnason skrifar: Í stað þes...
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni á föstudaginn, vegna gruns um að fyrirtækið hefði gerst sekt um misnotkun á markaðsráðandi stöð...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
Þeir sem halda að eitthvert fullveldisafsal felist í því að innleiða bókun 35 virðast misskilja málið
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
📅 13.10.2026 👁️ 2
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
Greining Teya byggir á kortaviðskiptum í átta hafnarbæjum síðastliðið sumar. Á Ísafirði voru að jafnaði 328 erlend greiðslukort notuð á dögum þegar sk...
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi Fréttin13. október 2026ErlentLeave a Comment Úkraínskur nemandi hefur v...
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
📅 13.10.2026 👁️ 2
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
Guilfoyle the allegations of improper conduct are "false" and being ambassador was the "honour of a lifetime".
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
📅 13.10.2026 👁️ 2
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
The sentence marks an end to the mystery around Tupac's cold case, which has intrigued hip-hop fans for nearly 30 years.
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
Von er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suður...
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
Eftir úttekt um endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar vorið 2019 var tveimur árum síðar gert samkomulag við ríkið um helmings fjármögnun nýrra björgu...
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
📅 13.10.2026 👁️ 2
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
Student protesters in France have told the BBC's James Waterhouse that they will continue to take action until change has been made. The protests have...
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
📅 13.10.2026 👁️ 3
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
Breska ríkisútvarpið BBC er sakað um ritskoðun eftir að slagorð til stuðnings transkonum var afmáð með stafrænni myndvinnslu af bol sem leikkonan Beth...
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
Að því er fram kemur í dagbók lögreglu náðist maðurinn skömmu síðar og reyndist þá vera réttindalaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sömuleiðis ...
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
📅 13.10.2026 👁️ 3
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
Landhelgisgæsla Íslands varar við að búast megi við mjög hárri sjávarstöðu í óveðrinu á morgun vegna lágs loftþrýstings. Þetta geti valdið flóðum.„Mjö...
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
📅 13.10.2026 👁️ 3
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
Dómur í hinu svokallaða Reykholtsmáli hefur nú verið birtur og kennir þar margra grasa. Málið, sem hefur ítarlega verið fjallað um í fjölmiðlum, varða...
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
📅 13.10.2026 👁️ 3
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
The school has faced an uproar over how it handled assault allegations brought by a woman known as Jane Doe.
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
📅 13.10.2026 👁️ 4
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
Stjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor...
Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum - Vísir
Teitur Arason veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir meiri veðurhæð á Suðurlandi og við Breiðafjörð en fyrri spár gáfu til kynna. „Annars búumst við v...
Active Tourism in the Canary Islands - things to do on the islands all year round
📅 13.10.2026 👁️ 3
Active Tourism in the Canary Islands - things to do on the islands all year round
The Canary Islands have long since shed their image as a purely beach destination. This Atlantic archipelago of eight islands offers dozens of active ...
Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi
📅 13.10.2026 👁️ 4
Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi
Andri Már Mortensen Birgisson, sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykholtsmálinu, var höfuðpaur og aðalskipuleggjandi þess. Þetta k...
Bandero leitar skjóls í Reykja­vík - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Bandero leitar skjóls í Reykja­vík - Vísir
Gunnar Tryggvason hafnstjóri Faxaflóahafna segir að gamla höfnin í Reykjavík sé mun skjólbetri en Akranesshöfn í áttunum sem spáð er. Eins og fyrr seg...
Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta - Vísir
Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu í borgarastyrjöld í nágrannaríkinu Jemen en undanfarna daga hafa þeir fært sig upp á skaftið með röð eldf...
Áform um að stytta hámarkstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár
📅 13.10.2026 👁️ 3
Áform um að stytta hámarkstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár
Hámarkstími nýrra verðtryggðra fasteignalána styttist úr 40 árum í 25 samkvæmt áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í Samráð...
MI5 chief warns against overstating Russian interference in Brexit vote
📅 13.10.2026 👁️ 4
MI5 chief warns against overstating Russian interference in Brexit vote
It comes after Andy Burnham said Moscow had tried to interfere in the 2016 referendum.
Hvetja Eyjamenn til að fara að öllu með gát í fyrramálið þegar skólastarf hefst
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hvetja Eyjamenn til að fara að öllu með gát í fyrramálið þegar skólastarf hefst
Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land á morgun. Lögreglan í Vestmannaeyjum varar íbúa við því að spáð sé veðrið verði verst í bænum í fyrramálið um...
Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu
📅 13.10.2026 👁️ 3
Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu
Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, hvetur ríkisstjórnina til að endurskoða áform um að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna viðha...
Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í Jemen
📅 13.10.2026 👁️ 3
Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í Jemen
Sádi-Arabar gerðu í dag árás á olíubirgðastöð Yemen Petroleum Company í borginni Sanaa í vesturhluta Jemen. Þetta segja talsmenn Húta í Jemen, en tals...
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á Norðvesturlandi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á Norðvesturlandi
Vegagerðin varar vegfarendur við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9:00 á morgun. Gul...