Sádi-Arabar gerðu í dag árás á olíubirgðastöð Yemen Petroleum Company í borginni Sanaa í vesturhluta Jemen. Þetta segja talsmenn Húta í Jemen, en talsmaður stjórnvalda í Sádi-Arabíu hafði fyrr í dag sagt að fólk ætti að halda sig frá stöðinni.
Árásin er svar við árásum Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu undanfarna daga. Þegar stjórnvöld þar gáfu út viðvörun sína sögðu Hútar strax að ef olíubirgðastöðin yrði sprengd myndu þeir í staðinn ráðast á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – sem þeir hafa gert áður síðustu daga – olíuhreinsistöð og bækistöðvar olíufyrirtækisins Aramco.
Átökin milli Sádi-Araba og Húta hafa stigmagnast undanfarnar vikur. 13 voru drepnir í árás Húta á flugvöllinn í Riyadh um helgina. Sádi-Arabar segjast hafa skotið niður nokkra dróna í dag. Það er því ekki að sjá að þessum átökum sé neitt að linna.
Sádi-Arabar hafa stutt stjórnarherinn í Jemen gegn Hútum frá því borgarastyrjöld hófst í Jemen árið 2015. Sú styrjöld hefur verið blóðug og valdið mörgum íbúum mikilli neyð. Átök höfðu legið niðri um skeið en blossuðu aftur upp í júlí.