Samkvæmt tilkynningu frá HHÍ gaf móðir konunnar henni miðann þegar hún var barn og hún hefur átt hann alla tíð síðan. Hún hafði raunar sagt móður sinni í morgun að hún hefði á tilfinningunni að hún myndi vinna í happdrættinu í dag en óraði ekki fyrir því hve stór vinningurinn yrði.
Tveir aðrir áttu miða með sama númeri og hlutu hvor um sig sjö milljónir króna. Ekki náðist í annan þeirra í síma og fær hann því góðu fréttirnar sendar með smáskilaboðum. Fimm trompmiðaeigendur unnu á bilinu eina til tvær milljónir króna. Einn milljónavinningshafanna hefur ekki skráð símanúmer hjá Happdrættinu og því var hvorki hægt að hringja í hann né senda honum smáskilaboð um vinninginn.
Alls hlutu 3.623 miðaeigendur vinninga í drætti dagsins og skiptu með sér tæplega 210 milljónum króna. Milljónaveltupotturinn féll ekki og hækkar því um 15 milljónir króna, þannig að hann verður 75 milljónir króna í nóvember.