Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi

Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi

Reykholtsmálið: Einbeittur brotavilji og algert skeytingarleysi

Andri Már Mortensen Birgisson, sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykholtsmálinu, var höfuðpaur og aðalskipuleggjandi þess. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Suðurlands sem birtur var í dag.

Alls voru sex ákærð í málinu fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán.

Brotaþoli, sem er 61 árs gamall palestínskur maður með maltneskt ríkisfang, var sviptur frelsi sínu frá föstudeginum 19. apríl til mánudagsins 22. apríl 2024 á heimili sínu í Reykholti. Þar beittu sexmenningarnir hann ítrekuðu og margþættu ofbeldi og hótunum í því skyni að ná af honum fjármunum.

Í framhaldi af því var hann farðaður og áverkar hans huldir og farið með hann í verslun Símans þar sem ákærðu fengu útgefin fyrir hann rafræn skilríki. Eftir það var manninum ekið upp á Keflavíkurflugvöll og honum flogið þaðan með tengiflugi til Möltu. Brotaþoli fór þá heim til fyrrum konu sinnar og komu hún og dóttir hennar honum undir læknishendur.

Alls náðu sakborningar að hafa af brotaþola 17,66 milljónir króna.

Maðurinn hlaut af ofbeldinu, meðal annars, blæðingu í framheila, mar í kringum hægra auga, brot á nefbeini, bólgu á hægri kjálka, brot bæði hægra og vinstra megin á kjálka, brot á fjórum tönnum, tapaði 15 tönnum og missti krónur á tveimur ásamt fjölda annarra minni áverka.

Þegar maðurinn veitti skýrslu við aðalmeðferð málsins, tæpum tveimur árum eftir að það gerðist, sagði hann enn erfitt að rifja upp ofbeldið í Reykholti og að hann stríddi enn við bæði líkamleg og sálræn eftirköst þess.

Fyrir nánari útlistun á atburðarás málsins bendum við á færsluna hér fyrir neðan eða dóm Héraðsdóms Suðurlands.

Dómurinn lýsir atburðarás sem fá fordæmi virðast fyrir í íslenskri dómaframkvæmd, þar sem frelsissvipting, fjárkúgun og nauðug brottför brotaþola úr landi fléttast saman í einu sakamáli. Þá er sérstakt að verulegt magn af upptökum var til í málinu þar sem sími Andra Más tók upp öll samtöl og hljóð um leið og reynt var að hringja úr símanum – hvort sem símtölunum var svarað eða ekki.

Fékk 8 ár fyrir að skipuleggja verknaðinn

Við ákvörðun refsingar allra ákærðu var litið til þess að langt var liðið frá því brotin voru framin. Ákæra var gefin út í málinu í febrúar 2026 en það átti sér stað í apríl 2024.

Andri Már var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir þátt sinn í málinu og voru brot hans sögð framin í hagnaðarskyni af einbeittum ásetningi og af algeru skeytingarleysi gagnvart heilsu, velferð og frelsi brotaþola. Þá stóðu brotin yfir samfellt um nokkurra daga skeið.

Sannað þótti að Andri Már hefði staðið að frelsissviptingunni og skipulagt hana, beitt brotaþola ofbeldi og stjórnað því hvernig reynt var að komast yfir bankaaðgang hans.

Þá framkvæmdi hann millifærslur af reikningum hans og skipulagði ferð hans bæði til Reykjavíkur og af landi brott til Möltu.

Upptökur sem minnst var á framar í fréttinni voru lykilsönnunargagn í málinu og taldi dómurinn að þær sýndu fram á að Andri hefði verið helsti skipuleggjandi og gerandi í málinu.

Ingunn Rut og Pétur fengu 3 ár

Ingunn Rut Sigurðardóttir, sem hlaut þriggja ára fangelsi, játaði sinn þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung fyrir dómi og gekkst einnig við því að hafa stolið bíl brotaþola.

Ekki þótti sannað að hún hefði sjálf beitt manninn ofbeldi sem hún var ákærð fyrir eða að hún hefði haft ásetning til þess.

Dómurinn lagði sérstaka áherslu á að Ingunn væri eini sakborningurinn sem hefði axlað ábyrgð með játningu sinni og lýst yfir iðrun. Dómari taldi þá iðrun trúverðuga og lét það hafa áhrif til lækkunar á refsingu hennar.

Pétur Már Mortensen Birgisson, bróðir Andra Más, var einnig dæmdur í þriggja ára fangelsi. Litið var til þess að hann var ungur þegar brotin áttu sér stað eða 18 ára gamall. Einnig var horft til þess að Pétur væri hræddur við bróður sinn. Því var þó hafnað að Pétur hefði verið viljalaust verkfæri í höndum bróður síns.

Sannað þótti að hann hefði tekið þátt í frelsissviptingunni, ekið brotaþola á milli staða og fylgt honum upp á flugvöll. Þá hefði hann ítrekað snúið aftur í Reykholt til þess að halda áfram að taka þátt í frelsissviptingu brotaþola meðan á henni stóð og fengið fjármuni frá honum eftir það.

Vissi af frelsissviptingunni og hagnaðist á henni

Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar og leigusali brotaþola, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hann hafnaði öllum ásökunum fyrir dómi og sagðist ekki hafa vitað af því ofbeldi sem beitt hefði verið helgina sem brotaþoli var frelsissviptur. Dómurinn féllst ekki á þær skýringar en féllst þó á að Sigurður hefði ekki stjórnað málinu, heldur verið skipuleggjandi þess, líkt og ákæra byggði að hluta til á.

Sannað þótti að Sigurður Gunnar hefði vitað að brotaþoli væri frelsissviptur í húsi hans og tekið þátt í að frelsissvipta hann með það í huga að markmið þeirrar frelsissviptingar væri að ná af honum fjármunum. Þá naut hann ávinnings af því þegar tvær milljónir króna voru millifærðar á hans reikning.

Fengu lægri refsingar fyrir minni aðkomu

Mennirnir tveir sem komu með Andra Má að heimili brotaþola í fyrstu, föstudaginn 24. apríl, fengu lægstu refsingarnar.

Sá fyrri hlaut eins árs fangelsi en sannað þótti að hann hefði farið með Andra til Reykholts og tekið þar þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung á fyrstu klukkustundunum.

Ekki þótti sannað að hann hefði beitt brotaþola ofbeldi eða tekið þátt í að kúga út úr honum fé. Þá hefði maðurinn ekki haft ásetning til þess að fremja þau brot sem framin voru eftir að hann yfirgaf vettvanginn. Stórum hluta ákærunnar á hendur honum var því vísað frá.

Sá seinni hlaut vægustu refsinguna í málinu eða alls sex mánuði. Líkt og fyrri maðurinn var talið sannað að hann hefði komið að frelsissviptingunni í upphafi og tekið þátt í henni. Aðkoma hans að málinu var talin takmörkuð og hann hefði ekki haft af henni neinn fjárhagslegan ávinning eða verið skipuleggjandi.

Mikið ósamræmi í framburði brotaþola

Í dóminum kemur fram að mikið ósamræmi var á framburði brotaþola og þess sem fram kom í málinu. Sem dæmi má nefna að hann taldi sig hafa verið í íbúð sinni allan þann tíma sem frelsissviptingin fór fram en upptaka úr síma Andra sannar það að maðurinn slapp á einum tímapunkti út úr henni en var færður þangað aftur.

Þá var ekki talið fullljóst af framburði hans hverjir komu inn á heimili hans á föstudagskvöldinu eða hverjir komu þar inn síðar. Hann taldi meðal annars að Ingunn Rut hefði verið í íbúðinni frá upphafi en það var talið ósannað. Fleiri dæmi um ósamræmi komu einnig fram í hinum ýmsu frásögnum sem raktar eru í dóminum.

Dómari taldi ekki að brotaþoli hefði vísvitandi sagt ósatt frá eða ruglingslega og að líklega væri ástæðan fyrir ósamræminu það áfall sem maðurinn varð fyrir. Hins vegar var ekki talið mögulegt að sakfella ákærðu í málinu fyrir háttsemi og athafnir sem aðeins var lýst í framburði mannsins við aðalmeðferðina.

Ósönnuð húsaleiguskuld ekki réttlæting á meðferð brotaþola

Rætt var mikið við aðalmeðferðina um rót málsins sem talin er vera húsaleiguskuld sem brotaþoli hefði skuldað Sigurði Gunnari. Hún hefði safnast upp á þeim fjórum árum sem maðurinn dvaldi hjá Sigurði. Hún á að hafa verið um 560 þúsund krónur.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ætluð, en alls ósönnuð, skuld hefði ekki komið til neinnar skoðunar og hefði verið málinu alls óviðkomandi. Hún gæti þá ekki réttlætt neitt af þeim raunum og píslum sem brotaþoli varð fyrir.

Brotaþola voru dæmdar alls 6 milljónir króna í miskabætur og tæplega 4,2 milljónir króna í skaðabætur vegna fjárhagslegs tjóns.

#algert #brotavilji #einbeittur #reykholtsmálið #skeytingarleysi


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-13-reykholtsmalid-einbeittur-brotavilji-og-algert-skeytingarleysi-489712

📰 Aðrar fréttir

Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
Kennararnir Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson voru í viðtali í Bítinu í morgun þar sem þau fóru yfir málið. Þar kom fram að starfsmennt...
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
📅 13.10.2026 👁️ 1
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
Forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarr...
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
📅 13.10.2026 👁️ 1
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
Um 200 þúsund manns tóku þátt í mótmælum til stuðnings bættum kjörum framhaldsskólanema í Frakklandi í dag. Harka tók að færast í leikinn síðdegis og ...
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
📅 13.10.2026 👁️ 1
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
Norðanstormur skellur á landinu á morgun og verða gular og appelsínugular viðvaranir víða í gildi. Rætt var við Birtu Líf Kristinsdóttur, veðurfræðing...
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
📅 13.10.2026 👁️ 1
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
William Chapman was attacked by the tiger after he entered its pen at Yorkshire Wildlife Park.
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
📅 13.10.2026 👁️ 1
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum síðustu vikur og mánuði við verkið, sem er umfangsmikið og vandasamt enda er þakið oft nefnt sem eitt af frægustu...
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
📅 13.10.2026 👁️ 1
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
Prosecutors say the device, wrapped in toilet paper, was found inserted in a USB port on the back of a TV in an executive conference room.
Leó páfi með lungnakrabbamein
📅 13.10.2026 👁️ 2
Leó páfi með lungnakrabbamein
Leó páfi fjórtándi gekkst undir skurðaðgerð á lunga fyrr í dag til að fjarlægja krabbamein. Meinið hafði fundist við reglubundna læknisskoðun, samkvæm...
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
Borunum til gullleitar í Þormóðsdal er lokið í bili. Fyrirtækið Aurania Resources segir rannsóknirnar vekja vonir.DV greindi frá því þann 9. september...
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
Fyrr í dag var greint frá því að aðgerðin hefði gengið að óskum en þá hafði ekki verið upplýst hvort hnútur sem fannst í lunga páfa væri illkynja. Í y...
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
📅 13.10.2026 👁️ 1
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er gagnrýnin á ummæli Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem hann lét falla í Spursmálum Morgun...
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Vísis um lengingu Vikunnar og auglýsingahlé í þættinum. Stefán segir auglýsi...
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
📅 13.10.2026 👁️ 1
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa. Kókaíninnflutningur til álfunnar hefur margfaldas...
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
Skotið var á Shakur úr bíl í Las Vegas 7. september 1996. Hann var 25 ára og einn áhrifamesti rappari heims þegar hann lést. Kviðdómur sakfelldi Davis...
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
Samkvæmt tilkynningu frá HHÍ gaf móðir konunnar henni miðann þegar hún var barn og hún hefur átt hann alla tíð síðan. Hún hafði raunar sagt móður sinn...
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
„Ég held að allir aðilar sem komu að þessum kjarasamningum geti verið stoltir af niðurstöðunni. Forsvarsmenn Breiðfylkingarinnar eru með stór mál inni...
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
Eva Dögg er 42 ára listrænn stjórnandi, hönnuður og frumkvöðull og stofnaði fyrirtækin L’Atelier Alba, The Face Ritual Method og RVK Ritual. Stefán Da...
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
📅 13.10.2026 👁️ 2
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur greint frá kerfisbundnu ofbeldi og misnotkun kvenna í viðkvæmri stöðu, t.d. með andlegar skerðingar, af há...
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
Forsætisráðherra segist sjá gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland í fyrirhuguðu innviða- og náttúrugjaldi. Hún segir fleiri staði e...
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
📅 13.10.2026 👁️ 2
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri fimleikafélagsins Bjarkar, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta tilkynnti hann foreldrum fyrir stuttu í gegnum a...
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
Páfi, sem er 71 árs, gekkst undir aðgerðina á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Hnúturinn fannst við reglulega læknisskoðun. „Aðgerðinni lauk farsælle...
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
📅 13.10.2026 👁️ 2
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
Bandaríska stuttþáttaröðin Band of Brothers kom út árið 2001, gerð af Steven Spielberg og Tom Hanks eftir samnefndri bók sagnfræðingsins Stephen E. Am...
Skuldar ekkert - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Skuldar ekkert - Vísir
„Það passar,“ segir Tryggvi Másson framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Flokkurinn hafi verið með veð í húsnæðinu Valhöll að Háaleiti...
Brýning Rubios
📅 13.10.2026 👁️ 3
Brýning Rubios
Brýning Rubios Fréttin13. október 2026Björn Bjarnason, Erlent, StjórnmálLeave a Comment Marco Rubio við Akrópólis. Björn Bjarnason skrifar: Í stað þes...
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni á föstudaginn, vegna gruns um að fyrirtækið hefði gerst sekt um misnotkun á markaðsráðandi stöð...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
Þeir sem halda að eitthvert fullveldisafsal felist í því að innleiða bókun 35 virðast misskilja málið
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
📅 13.10.2026 👁️ 2
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
Greining Teya byggir á kortaviðskiptum í átta hafnarbæjum síðastliðið sumar. Á Ísafirði voru að jafnaði 328 erlend greiðslukort notuð á dögum þegar sk...
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi Fréttin13. október 2026ErlentLeave a Comment Úkraínskur nemandi hefur v...
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
📅 13.10.2026 👁️ 2
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
Guilfoyle the allegations of improper conduct are "false" and being ambassador was the "honour of a lifetime".
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
📅 13.10.2026 👁️ 2
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
The sentence marks an end to the mystery around Tupac's cold case, which has intrigued hip-hop fans for nearly 30 years.
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
Von er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suður...
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
Eftir úttekt um endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar vorið 2019 var tveimur árum síðar gert samkomulag við ríkið um helmings fjármögnun nýrra björgu...
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
📅 13.10.2026 👁️ 2
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
Student protesters in France have told the BBC's James Waterhouse that they will continue to take action until change has been made. The protests have...
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
📅 13.10.2026 👁️ 3
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
Breska ríkisútvarpið BBC er sakað um ritskoðun eftir að slagorð til stuðnings transkonum var afmáð með stafrænni myndvinnslu af bol sem leikkonan Beth...
Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir
Umræddir frambjóðendur eru þau Thomas H. Kean Jr. og Miller-Meeks en þau sitja bæði í fulltrúadeildinni fyrir kjósendur í New Jersy annars vegar og Io...
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
Að því er fram kemur í dagbók lögreglu náðist maðurinn skömmu síðar og reyndist þá vera réttindalaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sömuleiðis ...
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
📅 13.10.2026 👁️ 3
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
Landhelgisgæsla Íslands varar við að búast megi við mjög hárri sjávarstöðu í óveðrinu á morgun vegna lágs loftþrýstings. Þetta geti valdið flóðum.„Mjö...
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
📅 13.10.2026 👁️ 3
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
Dómur í hinu svokallaða Reykholtsmáli hefur nú verið birtur og kennir þar margra grasa. Málið, sem hefur ítarlega verið fjallað um í fjölmiðlum, varða...
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
📅 13.10.2026 👁️ 3
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
The school has faced an uproar over how it handled assault allegations brought by a woman known as Jane Doe.
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
📅 13.10.2026 👁️ 3
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
Stjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor...
Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum - Vísir
Teitur Arason veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir meiri veðurhæð á Suðurlandi og við Breiðafjörð en fyrri spár gáfu til kynna. „Annars búumst við v...
Active Tourism in the Canary Islands - things to do on the islands all year round
📅 13.10.2026 👁️ 3
Active Tourism in the Canary Islands - things to do on the islands all year round
The Canary Islands have long since shed their image as a purely beach destination. This Atlantic archipelago of eight islands offers dozens of active ...
Bandero leitar skjóls í Reykja­vík - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Bandero leitar skjóls í Reykja­vík - Vísir
Gunnar Tryggvason hafnstjóri Faxaflóahafna segir að gamla höfnin í Reykjavík sé mun skjólbetri en Akranesshöfn í áttunum sem spáð er. Eins og fyrr seg...
Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta - Vísir
Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu í borgarastyrjöld í nágrannaríkinu Jemen en undanfarna daga hafa þeir fært sig upp á skaftið með röð eldf...
Áform um að stytta hámarkstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár
📅 13.10.2026 👁️ 3
Áform um að stytta hámarkstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár
Hámarkstími nýrra verðtryggðra fasteignalána styttist úr 40 árum í 25 samkvæmt áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í Samráð...
MI5 chief warns against overstating Russian interference in Brexit vote
📅 13.10.2026 👁️ 4
MI5 chief warns against overstating Russian interference in Brexit vote
It comes after Andy Burnham said Moscow had tried to interfere in the 2016 referendum.
Hvetja Eyjamenn til að fara að öllu með gát í fyrramálið þegar skólastarf hefst
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hvetja Eyjamenn til að fara að öllu með gát í fyrramálið þegar skólastarf hefst
Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land á morgun. Lögreglan í Vestmannaeyjum varar íbúa við því að spáð sé veðrið verði verst í bænum í fyrramálið um...
Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu
📅 13.10.2026 👁️ 3
Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu
Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, hvetur ríkisstjórnina til að endurskoða áform um að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna viðha...
Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í Jemen
📅 13.10.2026 👁️ 3
Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í Jemen
Sádi-Arabar gerðu í dag árás á olíubirgðastöð Yemen Petroleum Company í borginni Sanaa í vesturhluta Jemen. Þetta segja talsmenn Húta í Jemen, en tals...
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á Norðvesturlandi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á Norðvesturlandi
Vegagerðin varar vegfarendur við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9:00 á morgun. Gul...