Teitur Arason veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir meiri veðurhæð á Suðurlandi og við Breiðafjörð en fyrri spár gáfu til kynna.
„Annars búumst við við því að þessi djúpa og krappa óveðurslægð nálgist landið í nótt og skil frá henni gangi inn á land í fyrramálið með mikilli úrkomu og austanstormi. Hríð, slydda eða snjókoma til fjalla á vestanverðu og norðanverðu landinu, svo gengur lægðarmiðjan inn á land og þá minnkar vindurinn sunnan- og austanlands og úrkoman líka,“ segir hann.
Gengið gæti í norðanstorm með snjókomu niður undir sjávarmál á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
„Þar er útlit fyrir versta veðrið í samfara þessari lægð, það er að segja norðanstormur og snjókoma, sem kallast stórhríð þegar fer saman,“ segir Teitur.