Eftir úttekt um endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar vorið 2019 var tveimur árum síðar gert samkomulag við ríkið um helmings fjármögnun nýrra björgunarskipa og var fyrsta skipið afhent haustið 2022. Heildarkostnaður við hvert skip er um 340 milljónir króna, ríkið greiðir helming eins og fyrr segir, Landsbjörg 25 prósent og 25 prósent eru fjármögnuð af þeirri björgunarsveit sem fær skipið í hendur.
Fjármögnun fjögurra síðustu skipanna ólokið
Kolbeinn Óttarsson Proppé situr í stjórn Landsbjargar og er fulltrúi í framkvæmdastjórn björgunarbátasjóða.
„Niðurstaðan er sú að það þurfi 13 ný björgunarskip hringinn í kringum landið og það er engin tilviljun hvar þau eru sett niður og heldur ekki í raun og veru í hvaða röð. Það er metin þörfin fyrir þessar bjargir á hverju svæði. En það var samið við ríkið á sínum tíma og ríkið ákvað að koma að fjármögnun tíu skipa. Það gengur það vel að við reiknum með að tíunda skipið komi til landsins einhvern tíma á næsta ári. En eftir standa þá þrjú skip sem þarf til að loka hringnum til að uppfylla þessa þörf fyrir bjargir hringinn í kringum landið. Þannig að nú er gríðarlega mikilvægt að okkur takist að loka þessum hring.“
Hann segist ekki vita ástæðu þess að aðeins var samið við ríkið um aðkomu að fjármögnun tíu skipa af þrettán.
„Ríkisstjórn þess tíma ákvað að semja um tíu skip. Kannski hefur hugsunin verið sú að ríkisstjórnir sem að tækju við myndu þá semja um hin þrjú og við höfum miklar væntingar til að núverandi ríkisstjórn komi að þessu verkefni og hjálpi okkur við að fjármagna síðustu þrjú skipin. Þörfin er öllum augljós. Skipaumferð um landið hefur aukist. Við sjáum það bæði á atvinnuskipum og eins bara skemmtiferðaskipum hversu mikil þörf er á að hafa þessi skip.“
„Þannig að þá vantar frá ríkinu sem svarar 50 prósent af fjórum skipum, en það en samið um næsta skip. Þannig að hvert skip kostar í kringum 340 til 350 milljónir og ríkisvaldið greiðir 50 prósent af því, þá það sinnum þrír. Það er það sem vantar til að loka þessu. Síðan er reyndar ákveðin fjármögnun eftir í þeim skipum sem að nú þegar eru komin. Eigum við að segja að heildarkostnaður sé upp á kannski svona 1,6 milljarð á því sem eftir er.“
Þurftu að taka um 30 milljóna króna lán til að fjármagna kaupin á Sigurvin
„Þetta skip kom í mars árið 2023 og var skip númer tvö hjá Landsbjörg í þessu endurnýjunarferli sem er í gangi,“ segir Ingvar Erlingsson, stjórnarmaður í Björgunarsveitinni Strákum og Björgunarbátasjóði Siglufjarðar. Hann segir það hafa verið mikið átak að fjármagna hlut sveitarinnar í kaupum á björgunarskipinu Sigurvin. Og því hafi fylgt mikil ábyrgð að taka við skipinu þegar Landsbjörg hafði valið því stað á Siglufirði.
„Við þurftum að sjálfsögðu að leggjast vel yfir það hvort við hefðum hreinlega bolmagn til þess að taka við nýju skipi og sem sagt fjármagna þessi kaup. Okkar hlutur á þeim tíma slagaði í 80 milljónir og við þurftum svolítið að virkja samfélagið með okkur og hugsa hvort við virkilega réðum við verkefnið.“
„Og það var niðurstaðan að þörfin væri það mikil og við erum stórhuga í því sem við gerum og hérna, þannig að það var ákveðið að slá til, þó við vissum að sjálfsögðu að verkefnið yrði stórt og mikið. Sveitarfélagið hefur stutt til dæmis mjög vel við bakið á okkur og kom strax inn með ákveðið framlag sem var rausnarlegt. Sveitarfélögin hér í kring, einhver tóku þátt í þessu líka með okkur. Á þeim tíma var Rammi stærsta fiskvinnslufyrirtækið hér í bænum, þeir voru mjög rausnarlegir að koma að þessu með okkur. Það má eiginlega segja að svona helminginn af þessum 70 milljónum höfum við setið eftir með sjálfir í fanginu og höfum ekki klárað þá fjármögnun.“
„Við ákváðum að brúa bilið með lántöku og erum eiginlega í startholunum núna að fara að loka þessu gati sem situr eftir og vonumst til þess að við fáum svolítinn meðbyr í samfélaginu með okkur í það. Ég held að flestir sjái hver þörfin er hérna miðað við magn bæði stórra og smárra báta sem héðan róa og umferðina á hafinu hérna í kringum okkur.“
Reksturinn gangi misvel eftir deildum og sé alls staðar stórt verkefni
Ingvar segir að þessi rekstur gangi misvel eftir deildum, en sé alls staðar stórt verkefni. Sumar björgunarsveitir hafi náð að fjármagna kaupin að fullu áður en skipin komu og þá sé stuðningurinn heima fyrir mismikill. Landsbjörg tekur þátt í rekstrinum, greiðir til dæmis allar tryggingar og fleira við útgerð skipanna.
„Raunverulega eru framlögin frá Landsbjörg, sem við fáum til reksturs skipsins á ári, nokkurn veginn að dekka, hvað á ég að segja, venjulegt eðlilegt ár en það má lítið út af bregða. Til dæmis bara bilanir, stórar skoðanir, slipptaka, annað slíkt, það getur alveg velt okkur yfir í tap fyrir rekstur ársins. Og auðvitað eru tekjurnar ótryggar því að það er misjafnt með hvert verkefni, hvort að þau skila okkur tekjum eða ekki, og við erum bara alltaf til staðar og förum af stað og stundum fáum við tekjur fyrir verkefni og stundum ekki. Þannig að það er mjög óljóst hvernig árið kemur út en það má aldrei neitt svona koma fyrir eða út af bregða til þess að sigla þessu á hliðina hjá okkur.“
125 útköll hjá björgunarskipum Landsbjargar árið 2025
Miðað við tölur frá Landsbjörg um notkun björgunarskipanna er þörfin mikil. Á síðasta ári voru 125 útköll hjá skipunum, þau voru samtals 2.040 klukkustundir á sjó og notuðu 107.000 lítra af dísilolíu.
„Þetta er gríðarlega mikil útgerð eins og þessar tölur sýna,“ segir Kolbeinn.
„Og er síst ofmælt í þessum tölum sem sýna í raun og veru umfang verkefnisins. Þetta hafa verið útköll fyrir einstök skip og báta og við skulum ímynda okkur hvað gerist ef að það verður stórt slys hér úti fyrir ströndum landsins, skemmtiferðaskip eða eitthvað slíkt. Þá getum við ímyndað okkur hve þörfin er mikil fyrir þessi skip. Þannig að kostnaðurinn er mikill, bæði við að smíða skipin og fjármagna þau en ekki síður við að reka þau.
Vonuðust til þess að heildarsamtök útgerðar kæmu að endurnýjun skipanna
„Ég veit að við bárum væntingar í brjósti til þess að kannski stórútgerðin kæmi með dálítið myndarlegum hætti inn í þessa endurnýjun á sínum tíma. Það voru viðræður við heildarsamtök þar en þær skiluðu því miður ekki árangri, en einstaka útgerðir hringinn í kringum landið hafa verið að styðja einstök skip. En við sjáum á þessum tölum að þetta er verkefni alls samfélagsins, ríkisvaldsins og okkar allra, þannig að við þurfum að líta á það þannig að við þurfum öll að taka þátt í þessu.“