Greining Teya byggir á kortaviðskiptum í átta hafnarbæjum síðastliðið sumar. Á Ísafirði voru að jafnaði 328 erlend greiðslukort notuð á dögum þegar skemmtiferðaskip var í höfn, samanborið við 63 á dögum án skipa. Það er mismunur upp á 421%.
Meðalgreiðslan var hins vegar sú sama, um 4.900 krónur. Skipafarþegarnir eyða því ekki meira í hvert skipti, heldur fjölgar færslunum fimmfalt.
Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir komu skipa skipta sköpum fyrir atvinnulíf bæjarins.
„Þær skipta bara mjög miklu máli fyrir okkur og eru kærkomin viðbót, ekki bara fyrir ferðaþjónustuna heldur atvinnulífið í heild sinni. Við erum svona stórveldi í skemmtiskipamóttökunni þó að við séum lítil í ferðaþjónustunni heilt yfir.“
Farþegar minni skemmtiferðaskipa eyða nær þrefalt meira í landi
Eins og fram hefur komið leggjast orðið færri smærri skemmtiferðaskip eða svokölluð leiðangursskip að bryggju. Hafnir á borð við Húsavík og Borgarfjörð eystri sjá mikla fækkun í komu skipanna eftir að nýtt innviðagjald tók gildi um áramót.
Samkvæmt greiningu Teya eyða farþegar leiðangursskipanna að jafnaði hátt í þrisvar sinnum meira í landi en farþegar stórra skemmtiferðaskipa.
Stóru skipin skila þó fjórfalt meiri kortaveltu, enda eru farþegarnir margfalt fleiri.
„Botninn hefur eiginlega dottið úr móttöku leiðangursskipanna af ýmsum ástæðum. Sérstaklega tvennum. Vandamálum með tolla og hins vegar virðisaukaskatt. Þetta hefur haft veruleg áhrif, sérstaklega á smærri hafnir, sem hafa verið að taka á móti leiðangursskipunum. Einnig þessar stærri eins og okkur vegna þess að þetta eru verðmætir gestir sem að kaupa oft aðra þjónustu heldur en aðrir gestir af stóru skipunum,“ segir Gylfi.