Að því er fram kemur í dagbók lögreglu náðist maðurinn skömmu síðar og reyndist þá vera réttindalaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sömuleiðis var hann með fíkniefni á sér.
Einnig var tilkynnt um innbrot og þjófnað í sama umdæmi og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.