„Það passar,“ segir Tryggvi Másson framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu.
Flokkurinn hafi verið með veð í húsnæðinu Valhöll að Háaleitisbraut 1 sem var selt í byrjun árs.
„Við vorum með veð í húsinu sem við gátum greitt upp samhliða sölunni á húsinu.“
Fasteignafélagið Alva keypti húsnæðið á 850 milljónir og var kaupsamningur undirritaður í byrjun septembermánaðar.
Skuldlaus og húsnæðislaus
Aðspurður hversu mikið flokkurinn skuldaði segir Tryggvi að það sjáist í ársreikningum að upphæðin hafi verið í kringum 300 milljónir. Nú leigi flokkurinn aðstöðu hjá Sjóvá að Kringlunni 5, en að sögn Tryggva er stefnt að því að kaupa hentugt húsnæði undir starf flokksins.
„Í framtíðinni. Við erum með augun opin fyrir hentugu húsnæði.“
Nú húsakynni flokksins voru vígð síðasta fimmtudag. Flokkurinn bauð þá öllum Sjálfstæðismönnum í opnunarteiti.