Borunum til gullleitar í Þormóðsdal er lokið í bili. Fyrirtækið Aurania Resources segir rannsóknirnar vekja vonir.DV greindi frá því þann 9. september síðastliðinn að gulleit væri hafin í Þormóðsdal, austan við Hafravatn í Mosfellsbæ. Fyrirtækið Iceland Resources, sem er í eigu kanadíska námufyrirtækisins St. Georges Eco-Mining, er þar með rannsóknarleyfi. En félagið Aurania Resources ætlaði að fjárfesta um 620 milljónum króna í gullleitina hjá St. Georges.
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir