Von er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suðurlandi.
Hún tekur gildi strax í fyrramálið klukkan 05:00 og gildir til klukkan 10:00. Búist er við austan og norðaustan átt, 18 til 28 metrum á sekúndu og staðbundnum vindhviðum sem fara yfir 40 metra á sekúndu. Talsverð rigning verður á láglendi og geta lausamunir fokið.
Veðurviðvaranir víða annars staðar á landinu taka svo gildi ein af öðrum og er enginn landshluti undanskilinn. Næsta appelsínugula viðvörun tekur gildi klukkan 11:00 á Breiðafirði þar sem verður norðaustan- og síðar norðanvindur, 20 til 28 metrar á sekúndu, með mjög snörpum vindhviðum.
Appelsínugul viðvörun tekur svo gildi á Vestfjörðum klukkan 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 21:00.
Gular viðvaranir verða í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Norðurlandi eystra, Austurlandi að glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi, Miðhálendi og Ströndum og norðurlandi vestra.
Líkur eru taldar á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina vegna óvenju lágs þrýstings (allt niður í 936 hektara sköl).
Hætta á skriðum á Austfjörðum
Gul skriðuviðvörun hefur verið gefin út fyrir norðvestanverða og sunnanverða Austfirði þar sem síðustu vikur hafa verið fremur úrkomusamar. Jarðvegur í hlíðum er víða blautur eða vatnsmettaður og þar með viðkvæmur fyrir frekari vætu.
Vegagerðin hefur sent út aðvörun til vegfarenda þar sem búist er við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um klukkan 09:00 á morgun. Í tilkynningu Vegagerðarinnar er varað við ofsaveðri á Vestfjarðakjálkanum og utantil á Snæfellsnesi yfir daginn og fram á kvöld.
Ekkert ferðaveður verður víðs vegar um landið og er fólk beðið að fylgjast vel með aðstæðum og veðurspá eða bíða með ferðalög þangað til veður hefur gengið yfir