Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, hvetur ríkisstjórnina til að endurskoða áform um að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna viðhalds og endurbóta á íbúðarhúsnæði. Þvert á móti ætti að hækka endurgreiðsluna tímabundið í 100 prósent.Þetta kemur fram í aðsendri grein Birnu á vef Vísis þar sem hún bendir á að verulega hafi hægt á nýbyggingum hér á landi og horfur séu á að verkefnum í byggingariðnaði fækki á næstu misserum.
Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu