Stjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor. Þetta segir Michael Kotlikoff formaður háskólaráðsins í yfirlýsingu.
Þessi tími verði notaður til að fara ofan í saumana á bræðralagssamfélaginu til að ákveða hvort og þá hvernig það geti haldið áfram í skólanum á öruggan hátt.
Málið snýst um hópnauðgun sem var kærð í síðasta mánuði en kærandinn segir að hafi átt sér stað árið 2024. Hún hafi verið þvinguð til að taka ketamín og eftir það hafi sjö úr einu bræðralaginu ráðist á sig og nauðgað sér.
Þegar hún lét vita af nauðguninni á sínum tíma var bræðralagið lagt niður og nemendurnir reknir tímabundið. Brottreksturinn varð síðar varanlegur hjá tveimur þeirra.
Skólayfirvöld eru gagnrýnd fyrir að taka of vægt á þessu og eftir þá gagnrýni var fyrrverandi saksóknari fenginn til að gera sjálfstæða rannsókn á meðhöndlun skólans.
Kotlikoff segir að ekki sé þó hægt að bíða eftir niðurstöðu þeirrar rannsóknar áður en gripið er til aðgerða. Ef þessar reglur verða brotnar verði viðkomandi nemendur reknir úr skólanum.