Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum síðustu vikur og mánuði við verkið, sem er umfangsmikið og vandasamt enda er þakið oft nefnt sem eitt af frægustu glerþökum landsins. Héðinshurðir, ásamt samstarfsaðilum, vinna verkið eftir útboð.
„Verkefnið verður í tveimur hlutum. Við erum búnir að vera núna í innivinnu þar sem við höfum verið að pússa og mála límstrésbita og í raun og veru hlerana líka, sem eru fyrir glerinu,“ segir Gísli Kristjánsson, framkvæmdastjóri Héðinshurða.
Gísli segir að aðalverkið verði eftir áramót, en hvað gerist þá?
„Þá munum við í raun og veru byggja yfir glerþakið og tökum í raun og veru þrjár einingar ef maður getur sagt það þannig. Þetta eru í heildina um 300 gluggaeiningar, 298 ef ég man rétt. Þannig að við munum taka þrjár einingar í einu og byggja yfir það stillans, getur maður sagt, og vinna okkur síðan áfram.“
Þetta er mikið verkefni?
„Já, þetta er ábyrgðarmikið verkefni og annað og við gætum fyllsta öryggis og förum eftir öllum kröfum frá verkkaupa,” segir Gísli.
En hvernig er ástandið á gluggunum í dag?
Inn:
„Ástandið er kannski bara lýsandi eftir hvað, 35 eða 36 ár í íslensku veðri. Nú komum við með nýtt gler og nýja álprófíla og annað sem hentar nútímaþægindum í raun og veru og þetta mun hjálpa skólanum, það verður betri innivist og annað,” segir Gísli.
Gísli segir glerið þekja um 700 fermetra.
Hvað kostar þetta?
„Þetta hleypur á einhverjum hundruðum milljóna en við vöndum til verka og annað og förum vel með fé,” segir Gísli.