Bandaríska stuttþáttaröðin Band of Brothers kom út árið 2001, gerð af Steven Spielberg og Tom Hanks eftir samnefndri bók sagnfræðingsins Stephen E. Ambrose frá 1992. Þáttaröðin, sem samanstendur af tíu þáttum, er af mörgum talin sú besta sem gerð hefur verið og er hún með 9,4 í einkunn á IMDB og í fjórða sæti yfir bestu þáttaraðir allra tíma að mati notenda vefsins.Samkvæmt frásögn leikarans James McAvoy var bræðralagið þó ekki alls ríkjandi við tökur því hann segist hafa orðið fyrir einelti af hálfu eins meðleikara sinna.
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti