Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur undirrituðu málefnasáttmála nýs meirihluta í Reykjanesbæ í dag. Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, tekur við af Kjartani Má Kjartanssyni sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokks, verður formaður bæjarráðs. Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, tekur við sem forseti bæjarstjórnar.
Í málefnasáttmálanum segir að samstarf flokkanna byggi á sameiginlegri sýn um öflugan, framsækinn og fjölskylduvænan Reykjanesbæ.
Báðir flokkar voru með á stefnuskrá sinni að breyta þyrfti því hvernig staðið væri að móttöku hælisleitenda í sveitarfélagið. Vilhjálmur Árnason hefur sagt að setja þurfi skýr mörk í hælisleitendamálum í Reykjanesbæ. Gunnlaugur segir innviði bæjarins sprungna, Reykjanesbær hafi vegna þessa ekki tök á að taka við fleiri hælisleitendum.