Vilhjálmur Árnason þingmaður gerði forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni í dag. Hann greindi frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.
Vilhjálmur hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins var myndaður í Reykjanesbæ eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Hann hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var jafnframt varaformaður þingflokksins.
„Ég hlakka til næstu ára þar sem ég fæ loksins að starfa í heimabyggð og vera nær Sigurlaugu og strákunum okkar,“ segir Vilhjálmur í færslunni.