Sólin lét sjá sig á suðvesturhorninu í dag og var fjöldi fólks sem lagði leið sína í Nauthólsvík til þess að njóta hennar.
Sumir færðu hreinlega vinnustaðinn út til að geta notið dagsins.
„Það er fundur eftir nokkrar mínútur, ég þarf að taka hann í bílnum,“ sagði einn viðmælandi í kvöldfréttum RÚV sem naut sólskinsins á vinnutíma, en bætti við að góður velvilji væri fyrir því að fólk skreppi út í sólina milli funda.
Ekki flatmöguðu allir í sólinni. Þjálfarar á námskeiði Brokeyjar höfðu í nógu að snúast og voru að æfa sig í að sigla og sammæltust um að mun skemmtilegra væri að vinna í sólinni en í rigningu.
Á ströndinni flugu frisbídiskar og blakboltar um loftið og krakkar á öllum aldri busluðu í sjónum.