Veðurstofan varar við hvassviðri undir Eyjafjöllum og í Mýrdal þar sem vindur getur farið í 30 metra á sekúndu í hviðum. Gul viðvörun gildir frá klukkan sex í morgun til tvö síðdegis.
Suðlægar áttir verða ráðandi fram yfir helgi. Íbúar á vestanverðu landinu geta búið sig undir vætutíð en veðrið leikur við fólk á Norðausturlandi þar sem eru talsverðar líkur á að hiti fari yfir 20 stig, einkum á sunnudag.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu, en þrettán til átján syðst og um tíma á Reykjanesi. Rigning, en lengst af þurrt norðaustantil. Dregur heldur úr vætu eftir hádegi og snýst í hægari sunnanátt í kvöld. Hiti níu til átján stig, hlýjast fyrir norðan.
Suðvestlæg eða breytileg átt þrír til tíu á morgun. Dálitlar skúrir, en bjart að mestu á austanverðu landinu. Hiti ellefu til nítján stig, hlýjast á Norðausturlandi. Bætir í úrkomu vestanlands annað kvöld.