Fjölmargir mættu á fund Sameykis um uppsagnir. Valgeir Þór Jakobsson, varaformaður Frítímans fagfélags, segir engan skilning virðast vera á því hvað störfin snúast um: „Og þá sérstaklega ef ég horfi á frístundamiðstöðvarnar sem voru lagðar niður. Það er ekki verið að leggja niður einhver störf heldur verið að leggja niður sjálfsímynd nærsamfélags ungmenna og fjölskyldna í öllum borgarhverfum.“
Þórhildur Rafns Jónsdóttir segir það hafa verið mikið áfall að vera sagt upp sem deildarstjóri unglingastarfs hjá Frístundamiðstöðinni Kringlumýri: „Það þarf einhver að sinna þessu starfi og ég hef engar áhyggjur af að mitt fólk geti ekki unnið þetta starf. En það breytir bara þeirra starfi mjög mikið að þau þurfa að sinna hlutum sem í rauninni tekur þau í burtu frá því að vinna fagstarfið á gólfinu.“