Tekist er á um bókun 35 á Alþingi þessa dagana og hefur mikið verið rætt hvort hún sé í tæknileg útfærsla eða hvort hún varði við stjórnskrá Íslands. Í grunninn kveður bókun 35 um að þegar innleiddar Evrópureglur stangast á við eldri, almenn íslensk lög, skuli EES-reglurnar hafa forgang.
Davíð Þór Björgvinsson, prófessor emerítus við Háskólann á Akureyri, segist ekki horfa á málið sem pólitískt heldur mun fremur sem lögfræðilegt mál. Rætt var við hann og Eirík Svavarsson lögmann í Kastljósi í kvöld.
„Ég lít á þetta sem þannig að skuldbindingin til að tryggja EES-reglum forgang þegar það á sé alveg skýr samkvæmt EES-samningnum,“ segir Davíð sem telur að helsti ágreiningur um bókun 35 sé hvernig þetta sé gert.
Nauðsynlegt sé að finna leið til þess að tryggja þennan forgang. Hægt sé að fara ýmsar leiðir að því en fyrst og fremst sé það lögfræðilegt úrlausnarefni sem ekki krefjist breytingar á stjórnarskrá.
Ýmsar ástæður séu fyrir því að innleiðing á reglum EES mistakist. Hann telur að einungis séu um 10 mál sem hafi komið upp á um 30 árum þar sem upp hafi komið vandkvæði.
„Þannig að þetta er varla stórt og viðamikið vandamál sem varðar margar eins og við lítum á pólitísk stórmál,“ segir hann.
Hafi verið túlkunarregla í áratugi án vandkvæða
Eiríkur Svavarsson lögmaður segir að bókun 35 hafi í raun verið innleidd þegar EES-samningurinn var lögfestur 1994. „Við gerðum það hins vegar í formi túlkunarreglu og það var gert viljandi af hálfu löggjafans,“ segir Eiríkur sem nefnir að á þessum tíma hafi verið miklar vangaveltur um hvort EES-samningurinn stæðist stjórnarskrárreglur. Álit margra á þeim tíma hafi margir talið að bókun 35 færi yfir rauða línu í stjórnarskránni.
Hann telur að ekki séu 10 heldur einungis tvö mál sem hafi komið upp þar sem Hæstiréttur hafi ekki getað beitt þriðju greininni, túlkunarreglunni, þannig að hægt sé að gefa EES-reglum forgang.
Því ætti Ísland ekki að þurfa að innleiða bókun 35 formlega þar sem slík mál séu verulega sjaldgæf. „Ég tel allavega að við eigum ekki að setja á Íslandi tímalausa forgangsreglu,“ segir Eiríkur sem nefnir að bókun 35 hafi verið túlkunarregla í íslenskum lögum í 25 ár án athugasemda frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA).
Telur að byrja ætti út frá niðurstöðum málsóknarinnar
Tilkynnt var þó við lok síðasta mánuðar að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefði ákveðið að höfða samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum þar sem bókunin hefði ekki verið innleidd með réttum hætti.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra sagði þá að meiri bragur væri á því að ljúka málinu með lagasetningu heldur en fyrir dómstólum í Lúxemborg. Því er Eiríkur ósammála en hann telur að mun fremur byrja ætti á því að skoða innleiðingu bókunarinnar út frá niðurstöðum málsins. Ekki sé víst að Ísland beri sigur úr bítum í því en að niðurstaða þess geti leitt af sér leiðbeinandi forsendur.