Þegar hin ungverska Ilona Staller gekk upp að altarinu aðeins tvítug að aldri árið 1971 lýsti presturinn henni sem sorgmæddustu brúði sem hann hefði nokkurn tímann séð. Það átti við rök að styðjast. Þó að hún hafi játast unnusta sínum, 25 ára gamla Ítalanum Salvatore Mercuri, þegar hann fór á skeljarnar hafði hún skipt um skoðun. Hún kastaði hringnum sem hann gaf henni í snjóinn og ætlaði ekki að gifta sig. Stjúpfaðir hennar neyddi hana upp að altarinu til að forða fjölskyldunni frá niðurlægingu.
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi