Skagfirðingar eru öllu vanir þegar kemur að því að halda unglingalandsmót UMFÍ. Fréttastofa leit við á Króknum en undirbúningur stendur nú sem hæst.
„Við erum með yfir 20 keppnisgreinar. Þetta er ekki bara eitt fótboltamót eða eitt körfuboltamót. Þetta er fjölgreinamót. Markmiðið hjá okkur er að láta krakkana taka þátt í sem flestum greinum,“ segir Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri Unglingalandsmótsins.
Það þarf mikinn undirbúning og mikinn mannskap til að halda mót af þessari stærðargráðu. Ómar reiknar með 5-6000 gestum í tengslum við mótið og sömuleiðis 400 sjálfboðaliðum.
„Þetta væri aldrei hægt án sjálfboðaliðans. Þegar við komum með þessi mót í þau samfélög sem við höldum þessi mót þá bara spretta þau upp og hjálpa okkur.“