Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur hlotið bæði hrós og gagnrýni fyrir framgöngu sína í umræðuþætti á RÚV í gærkvöldi þar sem hún færði rök fyrir því að nei ætti að verða fyrir valinu í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Meðal þess sem vekur furðu sumra gagnrýnenda Sólveigar Önnu eru orð hennar í þættinum um að munur milli stétta á Íslandi sé ekki mikill. Var þá rifjað upp í því skyni viðtal sem Sólveig Anna fór í í janúar á þessu ári en þar er óhætt að segja að hún hafi talað á talsvert öðrum nótum.
Ummæli Sólveigu Önnar um stéttaskiptingu á Íslandi vekja furðu - Talaði á talsvert öðrum nótum í upphafi árs