Við ræðum við lögreglustjórann í Reykjanesbæ um málið og heyrum einnig í framkvæmdastjóra Geðhjálpar sem segir að félagið hafi án árangurs óskað eftir því að fá að fræða lögreglumenn um hvernig best sé að mæta fólki í andlegu ójafnvægi.
Einnig heyrum við í ráðherrum ríkisstjórnarinnar sem sátu ríkistjórnarfund í morgun, þann fyrsta eftir sveitarstjórnarkosningarnar og innum þá álits á úrslitum þeirra.
Að síðustu verður rætt við upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. Vegalokun í gær var harðlega gagnrýnd af mörgum og í dag eru framkvæmdir á svipuðum slóðum sem eiga þó ekki að valda eins miklum töfum og í gær.
Í sportinu fjöllum við svo um íslandsmeistaratitilinn sem Grindavík tryggði sér í gær á Sauðárkróki.