Í það minnsta 37 hafa látið lífið eftir drónaárás Rússlandshers á birgðastöð í útjaðri Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í nótt. Eldur kviknaði eftir árásina og í kjölfarið urðu kröftugar sprengingar. Yfirvöld segja hundruð íbúa hafa verið flutt á brott.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir í færslu á X að skotfæri hafi verið geymd í birgðastöðinni.
Þeir sem hafi leyft því að gerast þurfi að vera dregnir til ábyrgðar. Alls ekki megi geyma skotfæri nærri heimilum eða íbúabyggð. Zelensky segir að einn hinna látnu sé sveitarstjóri í Dmytrivka sem hafi komið að björgunarstörfum á vettvangi.
Sambærilegt atvik í júlí
Saksóknarar í Úkraínu segja sprengfima hluti hafa verið geymda í birgðastöðinni og hafa hafið rannsókn á lögmæti þess. Þeir ætla að kanna hvort eigandinn hafi haft tilskilin leyfi. Ekki hefur verið greint frá því hvort birgðastöðin tilheyrði hernum eða fyrirtæki.
Sergiy Koretsky, forsætisráðherra Úkraínu, segir það miður að ekki hafi verið dreginn lærdómur af sambærilegu atviki sem varð í júlí. Þá var árás gerð á birgðastöð þar sem skotfæri voru geymd. Í ljós kom að ríkisfyrirtæki hafði ekki fylgt reglum um nálægð við íbúabyggð.
Mannfall meðal almennra borgara aukist að undanförnu
Tveir voru drepnir í öðrum árásum Rússlandshers í nótt. Samkvæmt úkraínska flughernum skutu Rússar tveimur flugskeytum og 267 drónum að Úkraínu í árásum næturinnar.
Fjórir voru drepnir í árásum Úkraínuhers á Rússland og Krímskaga í nótt.
Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa á undanförnum mánuðum bætt verulega í langdrægar árásir með auknu mannfalli meðal almennra borgara. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna var nýafstaðinn júlímánuður sá mannskæðasti í stríðinu í Úkraínu frá því í apríl 2022.
Viðræður um endalok stríðsins sem Bandaríkin hafa haft forgöngu um hafa legið í dvala svo mánuðum skiptir. Rússar hafa farið fram á að Úkraínumenn gefi eftir talsvert landsvæði. Stjórnvöld í Kænugarði útiloka það.
Fyrr í vikunni heimsótti John Ratcliffe, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, Moskvu. Heimsóknin var fyrirvaralaus.