Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna eigi nokkrar leiðir út úr stríði Bandaríkjanna og Írans.
Rót deilunnar sé erfitt að leysa. Trump sé fastur í gildru með þrjá kosti sem allir eru slæmir.
Fyrsti kosturinn sé að auka hernaðaraðgerðir og jafnvel beita landhernaði. „Það mun hann heyra frá herforingjum sínum að er vond leið og ekki líkleg til að ná góðri niðurstöðu pólitískt.“
Annar kosturinn sé að þrengja efnahagslega að Íran, meðal annars með hafnbanni og viðskiptaþvingunum, og vona að úthald þeirra verði minna en heimshagkerfisins. „Það er líka ólíklegt. Eiginlega vænsti kosturinn fyrir Trump er að lýsa yfir sigri og stíga í burtu en það er heldur ekki vandalaus niðurstaða.“
Erlingur ræddi ástandið í Mið-Austurlöndum í þættinum Fram undan á Rás 2 í morgun.
Olíuverð hækkar meira
Erlingur býr í London þar sem bæði sérfræðingar í endurtryggingabransa og fólk sem verslar með olíu segi sér að olíuverð hafi hækkað minna en tilefni er til. „Teygjanleiki kerfisins er meiri en hann hefur verið áður.“
Olíutunnan kostar um 100 dollara. „Margir sérfræðingar telja að það ætti að vera 150 eða meira miðað við stöðuna í útflutningi.“
Erlingur segir að jafnvel þótt deilan leystist á morgun liði langur tími áður en olíuverð kemst í jafnvægi. Ef hún harðnar dýpki vandinn. „Ég held við séum ekki búin að sjá fyrir endann á þessum olíuverðsvanda þó að stríðinu myndi ljúka strax á morgun.“
Hann bendir á að Íranar hafi hingað til hikað við að beita lokunum á Hormússundi.
„Hvernig sem þessi áföll enda mun Íran í framtíðinni hafa ákveðið kverkatak á þessu sundi og geta beitt þvingunum þar ef í harðbakkann slær í framtíðinni. Það er alveg nýtt fyrir þá, þeir hafa ekki viljað fara þessa leið áður.“