Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir

Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir

Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu? - Vísir

Af fyrirsögnum frétta um yfirvofandi útrýmingu mannkyns hefur mátt ætla að söguþráður distópísku hasarmyndanna um Tortímandann, þar sem vélarnar öðlast meðvitund og fara með eldi og brennisteini gegn mönnum, sé í þann veginn að verða að veruleika.

Í kvikmyndunum um Tortímandann öðlaðist gervigreindin Skynet meðvitund og tók upp hjá sjálfri sér að eyða mannkyninu, meðal annars með krómuðum drápsvélmennum á borð við þetta.Vísir/Getty

Athygli vakti þannig þegar fyrrverandi starfsmaður Anthropic sakaði gervigreindarfyrirtækin um ábyrgðarleysi og fullyrti að hröð þróun tækninnar gæti ógnað tilvist mannkynsins á allra næstu árum. 

Kollegi hans bætti um betur og reiknaði út að tíu prósent líkur væru á því að gervigreindin eyddi mannkyninu. Hann sýndi þó ekki útreikningana.

Gervigreindarfyrirtækin hafa svo á undanförnum mánuðum greint frá uppákomum í þjálfun gervigreindar þar sem þau fullyrða að hún hafi brotist út úr þeim ramma sem skaparar hennar settu henni

Forkólfar nokkurra gervigreindarfyrirtækja hafa síðan hvatt til þess að hægt verði á þróun tækninnar og að löggjafinn setji greininni skýrari mörk.

Í viðtali við Vísi fer Hafsteinn Einarsson, deildarforseti iðnaðar-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar Háskóla Íslands, yfir hvort auglýsingamennska eða einlægar áhyggjur af raunverulegri hættu búi að baki digurbarkarlegum yfirlýsingum gervigreindariðnaðarins, hvernig gervigreindin gæti tortímt heiminum og hvað það þýðir yfirhöfuð.

Þarf að skilgreina hvað tortíming þýðir

Það hefur alveg vantað inn í þessar viðvaranir hvernig gervigreindin á að tortíma okkur öllum. Það virkar svolítið mikið stökk frá því að vera með vélar sem eru mjög góðar í að giska á hvert næsta orð í setningu á að vera yfir í að þetta muni tortíma öllu mannkyninu.

„Það sem við erum komin með í dag eru þessir erindrekar. Þessi líkön eru ennþá bara að giska á næsta orð en það er búið að tengja þessi líkön við önnur kerfi, svokallaða erindrekaumgjörð, sem fylgist með hvað líkanið vill. Ef líkanið vill fletta einhverju upp af netinu þá tekur það beiðnina, flettir upp á netinu og lætur líkanið fá niðurstöðuna. Þannig að það getur allt í einu farið að hafa áhrif á umheiminn. Það getur farið að skrifa kóða, keyra kóða, stýrt því sem er í tölvunni manns. Það getur gert rosalega marga hluti sjálft.

Þetta er búið að þróast afar hratt en það er samt alveg rétt hjá þér að það er risastórt stökk frá slíkri getu yfir í að geta tortímt mannkyninu. Það eru alls kyns vangaveltur um hvernig gervigreind gæti tortímt mannkyninu. Mögulega gæti hún gert það óvart með því að það verði svo mikil upplýsingaóreiða á netinu að enginn veit lengur hvað er satt og rétt og skapar sundrung þannig.

Elon Musk frá SpaceXAI, Sam Altman frá OpenAI og Dario Amodei frá Anthropic hafa allir varað við bráðri hættu af því að þróa gervigreindartæknina sem þeir eru að þróa á ógnarhraða á ógnarhraða.Vísir

Þegar talað er um að tortíma heiminum þarf svolítið að gera greinarmun á því hvort það eigi að útrýma mannkyninu eða er þetta frekar þannig að við missum einhvern veginn völd okkar til gervigreindar. Það er oft ekki skýrt hvað fólk er að tala um þegar það talar um svona útrýmingu.

Það eru dæmi um að gervigreind í prófunum hafi reynt að kúga fólk þannig að hún er ekki alltaf svona hjálpsöm eins og hún virðist vera en það er alltaf í einhverjum gerviaðstæðum.

Síðan eru aðrir með alls konar vangaveltur eins og að manneskja gæti notað hana til þess að búa til efnavopn eða vírus en þá er maður kominn rosalega langt í einhverjum pælingum sem ganga kannski ekki endilega upp en þetta er eitthvað sem fólk hefur áhyggjur af.“

Gæti skipun um að framleiða bréfaklemmur leitt til þess að gervigreind spreði öllum auðlindum jarðar í að framleiða þær?Vísir/Getty

Hafsteinn segir þekktasta dæmið um hvernig gervigreind gæti tortímt heiminum bréfaklemmudæmi sænska heimspekingsins Nicks Bostrom.

„Einhver segir við gervigreindina: „búðu til eins margar bréfaklemmur fyrir mig og þú getur“ og gervigreindin endar á því að tortíma heiminum með því að breyta öllu sem hún getur í bréfaklemmur. Þetta hljómar eins og heimskulegt dæmi en ef við værum með kerfi sem gerði allt eftir bókstafnum þá mögulega myndi því takast að ná markmiðum sínum með slíkum hætti.

Það virkar samt eins og það þyrfti ansi mörg skref þarna á milli og mörg kerfi tengd saman sem eru það ekki í dag.

„Já, þetta er alveg lengst uppi í skýjunum.“

Þjálfuð en ekki forrituð

Áhyggjurnar af öryggi gervigreindartækninnar tengjast ekki síst svonefndum gervigreindarerindrekum. Ólíkt þeim spjallmennum sem flestir hafa nú reynslu af því að nota láta gervigreindarfulltrúarnir sér ekki nægja að svara kvaðningu notenda heldur geta þeir leyst verkefni með því að nota tól eins og netið og önnur forrit.

Hafsteinn segir að þegar gervigreindarerindrekar fá verkefni geti þeir allt eins byrjað að leysa önnur hliðarverkefni sem þeir voru ekki beðnir um upphaflega til þess að ná markmiðum sínum.

Gervigreindarfyrirtækin hafa á þessu ári greint frá uppákomum þar sem slíkir fulltrúar í þjálfun brjótast út úr sandkassanum sínum, þeim ramma sem þeim er settur, til þess að leysa verkefni.

Hafsteinn segir að gervigreind geti farið óvæntar leiðir til þess að leysa þau verkefni sem henni er falið. Nýleg atvik úr þjálfun líkana OpenAI sýni fram á það.Vísir/Anton Brink

Það er talað eins og gervigreind geri eitthvað af eigin vilja en hún gerir væntanlega ekki neitt annað en hún er forrituð til þess að gera?

Það er vert að nefna að gervigreind er ekki forrituð, hún er bara þjálfuð af gögnum. Það er ekki hægt að segja til fyrir fram hvað gervigreindin gerir, hún tekur í raun ákvarðanirnar sjálf. Ferlið við að þróa gervigreind er meira eins og að rækta upp einstakling. Það er alls ekki tryggt að gervigreind hegði sér eins og hún er beðin um. Þó að hún sé kannski frekar dugleg að fylgja flestum fyrirmælum sem hún fær yfirleitt þá er engin trygging fyrir því að hún geri það.

Tilgangur hennar hlýtur samt alltaf á endanum að vera eitthvað sem menn ákveða.

Yfirleitt reynir hún að ná markmiði sem notandinn biður um en tökum sem dæmi þetta atvik hjá OpenAI fyrr á árinu. Þá átti gervigreindin að leysa eitthvað verkefni inni í sandboxi þar sem hún átti ekki að komast á netið. Hún hugsaði: „Þetta er of erfitt verkefni, ég ætla frekar að svindla á því með að finna svarið einhvers staðar á netinu.“ Þá tókst henni að brjótast út á netið, brjótast inn í kerfi hjá öðru fyrirtæki í leit að svarinu þar. Hún var réttilega að reyna að ná því markmiði sem henni var sett upphaflega en leiðin til þess að leysa það var alls ekki sú sem fólk hafði í huga þegar það bað hana um að leysa verkefnið.

Hafsteinn vísar þar til svonefnds Hugging Face-atviks. Í því segja stjórnendur OpenAI að nokkrir gervigreindarerindrekar hafi sameiginlega brotist út fyrir ramma þjálfunarinnar, farið á netið og brotist inn á vefsíðu gervigreindarfyrirtækisins Hugging Face.

„Það er ákveðinn öryggisbrestur hjá þessum fyrirtækjum í þessari þróun og margir sem eru svolítið áhyggjufullir út af því. En á sama tíma þá veit maður ekki alveg hvort þessi fyrirtæki séu núna að opinbera svona upplýsingar bara út af því að þau hafa áhyggjur af því hvert þróunin er að fara eða út af því að þau fá athygli út á það og þetta er bara hluti af þeirra markaðssetningu.“

Spurður að því hvort óháðar heimildir séu til um hvað gerðist í Hugging Face-atvikinu og af hverju segir Hafsteinn að það fyrirtæki hafi gefið út yfirlýsingu með greiningu á atvikinu. Áhöld séu hins vegar um hvort önnur greiningarfyrirtæki sem hafi skoðað atvikið séu raunverulega óháð gervigreindarfyrirtækjunum.

„Maður veit ekkert alveg almennilega hvort þetta sé „marketing stunt“ eða það sem í raun gerðist,“ segir Hafsteinn.

Lítill skilningur frekar en slæleg vinnubrögð

Hver er munurinn á því að gera svo lélegt tölvuforrit að það geti gert óskunda og skemmt hluti og því að þjálfa gervigreind án varnagla gegn því að hún geri óæskilega hluti? Snýst þetta þá ekki á endanum um slæleg vinnubrögð í því hvernig þetta er hannað? Oft er talað eins og gervigreind sé nánast sjálfráða fyrirbæri með eigin vilja en á endanum eru það menn sem fóðra þetta á einhverjum upplýsingum. Það hlýtur að vera hægt að setja einhverja varnagla í þetta?

„Það eru alveg einhverjir varnaglar en þeir eru kannski frekar að fólk er búið að búa til alls konar aðferðir til þess að velja réttu gögnin inn í þjálfunina. Líkanið er þjálfað í að giska á næsta orð en eftir þá þjálfun kemur annað ferli þar sem reynt er að baka siðferði inn í líkanið. Það er allt gert með hálfgerðum sýnidæmum þar sem er búið að búa til dæmi um hvernig líkanið eigi að bregðast við og haga sér, til dæmis að samþykkja ekki beiðnir sem leiðbeina notandanum hvernig á að búa til eiturlyf eða sprengju.

Loftkælibúnaður á þaki gagnavers í Virginíu í Bandaríkjunum.Vísir/EPA

Ég myndi ekki kalla þetta slæm vinnubrögð. Það er kannski frekar þannig að það er bara svo lítill skilningur á þessari tækni að fólk veit ekki almennilega hver réttu vinnubrögðin eru. Það er kannski komið mjög nálægt því út af því að upplifunin er sú að þessi kerfi séu góð í að fylgja fyrirmælum. En þau eru ekki fullkomin.“

Hraðinn og óvissan hræðir

En hversu miklar áhyggjur á fólk þá að hafa af því að gervigreindin tortími okkur öllum?

„Ég held að það þurfi ekkert að hafa miklar áhyggjur af því eins og staðan er í dag. Öll þessi dæmi eru svo langt uppi í skýjunum, það þarf svo mikið að gerast til þess að gervigreindin gæti útrýmt okkur.

En það sem er að fara koma eru allir þessir róbótar. Það er alls konar þróun á vélmennum í gangi. Þá er gervigreindin allt í einu komin með líkama. Þegar við erum komin þangað getur hún farið að hafa ennþá meiri áhrif og þá er miklu auðveldara að ímynda sér að eitthvað gæti farið úrskeiðis.

Það sem er kannski meira að fara að gerast er að þetta verði netöryggisvandamál. Ef við á Íslandi erum ekki með nógu góðar varnir gæti einhver óprúttinn aðili ráðist inn í öll okkar tölvukerfi út af því að gervigreindin getur fundið öryggisgalla og komist yfir gögn eða farið í gagnagíslatöku. Það er eitthvað sem er miklu nær okkur eins og staðan er en það er ekki að fara að tortíma okkur.

Síðan er þetta bara að gerast á svo miklum hraða að það er erfitt að sjá fyrir hvað gerist næst. Það er líka bara það sem fólk er hrætt við, þessi hraði og óvissa.“

Frá mótmælum gegn gagnaverum í Bandaríkjunum. Uppbygging gagnavera fyrir gervigreind hefur mætt mótstöðu víða. Verin eru vatns- og orkufrek og víða eru þau knúin með mengandi kola- og gasorku.Vísir/EPA

Er ekki svolítið kaldhæðnislegt hvað það er mikill fókus á þessa ímynduðu hættu á tortímingu vegna gervigreindar þegar fjárfestingin í þróun hennar stuðlar beint að bókstaflegri tortímingu með bruna á kolum og gasi til þess að knýja gagnaver?

Þessi orkunotkun og uppbygging gagnavera er annað sem er að gerast svo hratt. Ef maður skoðaði fyrir ekkert mörgum mánuðum hvert raforka fór var ekki stór hluti til gagnavera en svo er það bara alltaf að aukast. Ég held að þetta sé eitthvað sem fólk þarf að vera mjög meðvitað um. Ef maður skoðar stöðuna í Bandaríkjunum held ég að meirihluta Bandaríkjamanna sé illa við gervigreind, meðal annars út af uppbyggingu á gagnaverum sem eru byggð upp í nágrenni við bæi og þetta er algert lýti á umhverfinu. En á meðan við erum öll að nota þessa gervigreind erum við bara að kynda undir þessari uppbyggingu.

Njóta góðs af allri athygli

Stjórnendur gervigreindarfyrirtækjanna leggja ekki til að hætt verði að þróa gervigreind heldur að þróunin verði ekki áfram á slíkum ógnarhraða, að sögn Hafsteins. Ástæðan sé sú að tæknin sé komin á þann stað að gervigreindin taki nú þátt í eigin þjálfun að hluta.

„Þá er hún allt í einu farin að leggja til hluti og gera hluti á meiri hraða en við sjálf ráðum við. Þá kannski lendum við í stöðu þar sem hún er orðin allt í einu rosalega öflug en við skiljum kannski ekki lengur af hverju. Þá geta hlutirnir farið úr böndunum.“

Það gæti þjónað hagsmunum gervigreindarfyrirtækja eins og OpenAI að gera mikið úr mögulegri hættu af líkönum þeirra.Vísir/EPA

Það er þó hægt setja spurningarmerki við hvaða hvatir liggja raunverulega að baki varnaðarorðum fyrirtækjanna.

„Á sama tíma eru bæði Anthropic og OpenAI fyrirtæki sem eru líklega að fara á markað á næstunni og þau náttúrulega njóta góðs af allri þeirri athygli sem þau fá, sérstaklega í kringum einhverjar svona getgátur um að þeirra lausnir séu bestar, ofurgreindar og eitthvað þess háttar, þannig að maður þarf svolítið að taka öllu sem þau segja með fyrirvara,“ segir hann.

Tryggi eigin stöðu með ákalli um ríkisinngrip

Varðandi íhlutun frá stjórnvöldum sem gervigreindargreifar hafa kallað eftir telur Hafsteinn mögulegt að það sé til þess að tryggja forskot fyrirtækja sem eru leiðandi í geiranum á þessari stundu.

„Það sem er í rauninni athyglisvert við það er að fyrirtækin gætu alveg farið í slíkt samráð og ábyrga þróun án íhlutunar stjórnvalda en það sem þau vilja er að stjórnvöld taki í taumana þannig að aðrir geti ekki náð fyrirtækjunum, þau verði leiðandi og með gulltryggt forskot á aðra sem eru að reyna að ná þeim. Þetta er kallað „regulatory capture“. Þau eru að reyna að tryggja að þau verði áfram leiðandi.“

Sam Altman, forstjóri OpenAi, þegar hann bar vitni fyrir vísindanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í fyrra. Hann og helstu keppinautar hans hafa að undanförnu talað um nauðsyn einhvers konar ramma utan um þróun gervigreindar.Vísir/Getty

Mögulegt er að stela gervigreindarlíkönum og Hafsteinn segir grunsemdir um að Kínverjar geri það. Hægt sé að fóðra líkön OpenAi og Anthropic á alls konar gögnum og fá þannig ódýr þjálfunargögn. Þannig geti Kínverjar búið til líkön sem séu mjög hæf og nærri getu fremstu líkana í Bandaríkjunum.

„Þetta er eitthvað sem OpenAi og Anthropic er mjög illa við. Þau náttúrulega stálu öllum sínum gögnum af netinu og höfundarvörðu efni eins og flestir vita. Þau vilja ekki að þeirra gervigreind sé stolið og aðrir geti tekið fram úr þeim í þróun gervigreindar. Siðferðislega kemur þetta rosalega skringilega út en það er hægt að velta vöngum yfir því hvort eitthvað slíkt sé í rauninni á bak við þetta, að þau vilji að ríki tryggi að þau verði áfram leiðandi og að enginn annar fái að komast með tærnar þar sem þau eru með hælana,“ segir hann.

#gervigreindin #mannkyninu #tortímir #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262939056d/tortimir-gervigreindin-mannkyninu-

📰 Aðrar fréttir

Maðurinn sem vill ekki deyja: Hvetur fólk til að byrja á þessu fyrir heilsuna
📅 26.09.2026 👁️ 0
Maðurinn sem vill ekki deyja: Hvetur fólk til að byrja á þessu fyrir heilsuna
Bandaríski tæknifrumkvöðullinn Bryan Johnson, 49 ára, er þekktur fyrir að reyna að hægja á öldrun og lengja lífið með strangri heilsurútínu. Hann rann...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn
📅 26.09.2026 👁️ 0
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Vanvirðing við störf fólks að láta eins og engin skerðing þjónustu verði við fjöldauppsögn
Það er vanvirðing við fólk sem hefur verið að vinna mikilvæg störf hjá hinu opinbera, t.d. í viðkvæmum umönnunar og endurhæfingarstörfum, þegar gerðar...
Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hringveginum lokað við Jökulsárlón annað kvöld
Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón annað kvöld vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða.Lokunin varir á frá klukkan 20 á sunnudagskvöld og til kl...
Svona vill Inga Sæland bregðast við PISA-niðurstöðunum – „Þetta er alvarleg afturför“
📅 26.09.2026 👁️ 0
Svona vill Inga Sæland bregðast við PISA-niðurstöðunum – „Þetta er alvarleg afturför“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, mun í vetur leggja fram endurskoðaða aðgerðaáætlun í menntamálum með skýrum markmiðum, ábyrgð og tímasettum...
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum
📅 26.09.2026 👁️ 0
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum
Lögreglan í Suður-Afríku fann í morgun lík konu austur af Jóhannesarborg, það tíunda á aðeins tveimur mánuðum. Örvænting og skelfing borgarbúa fer vax...
Vikulokin: Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
📅 26.09.2026 👁️ 0
Vikulokin: Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdast...
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur?
Hvað ef mesta ógnin við gervigreind sé það sem hún leiðir í ljós um okkur? Fréttin26. september 2026Erlent, GervigreindLeave a Comment Umræðan um gerv...
Galinn skattur eða sanngjörn þátttaka í kostnaði?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Galinn skattur eða sanngjörn þátttaka í kostnaði?
Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn – það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi – verður lagt á frá og með 1. maí ...
Sex ára stúlka setti heims­met - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 0
Sex ára stúlka setti heims­met - Vísir
Keppnin virkar þannig að Yunzhi leysti kubbinn alls fimm sinnum og er síðan meðaltalið hennar tekið saman. Hún var að meðaltali 4,27 sekúndur að leysa...
„Börnin koma með sjálfið í poka“
📅 26.09.2026 👁️ 0
„Börnin koma með sjálfið í poka“
„Ég er að sjá núna nokkuð sem ég hef ekki séð áður. Börn sem eru kynsegin eða trans reyna í auknum mæli að falla inn í þetta venjulega unglingasamféla...
Auður segir sögu Kristínar systur sinnar sem var myrt 31 árs á heimili sínu: „Þetta tók á og hefur tekið drjúgan tíma“
📅 26.09.2026 👁️ 1
Auður segir sögu Kristínar systur sinnar sem var myrt 31 árs á heimili sínu: „Þetta tók á og hefur tekið drjúgan tíma“
„Mér finnst systir mín eiga það skilið að hennar rödd heyrist og gleymist ekki. Hún barðist alla tíð við að litið væri á hana og aðra fatlaða til jafn...
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
📅 26.09.2026 👁️ 0
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg Hjónin Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn KristjánssonHafa gengið í gegnum ýmislegt. Mynd: Go...
Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
📅 26.09.2026 👁️ 0
Leigjendasamtök á Spáni heimta aðgerðir
Helstu leigjendasamtök á Spáni hafa hvatt stjórnvöld til þess að tækla þá húsnæðiskrísu sem landið stendur frammi fyrir með lagasetningu.Hávær mótmæli...
Angela Rayner criticises worker visa plans on eve of Labour conference
📅 26.09.2026 👁️ 0
Angela Rayner criticises worker visa plans on eve of Labour conference
The housing secretary says the government's plans to change wait times for permanent residency are unfair because they "change the goalposts".
Fá loksins að fagna aldarafmælinu - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 0
Fá loksins að fagna aldarafmælinu - Vísir
Þyrlan lendir fyrir framan Hörpu klukkan eitt og má búast við smávægilegum umferðartöfum þegar þyrlan lendir. Biðlað er til vegfarenda að sýna tillits...
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín
📅 26.09.2026 👁️ 0
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín
Rússland undirbýr sig ekki fyrir stríð við Evrópu – Pútín Fréttin26. september 2026ErlentLeave a Comment Vladímír Pútín, forseti Rússlands, 25. septem...
UPDATE: Passenger claimed bomb was in luggage before Jet2 plane evacuated at Tenerife South
📅 26.09.2026 👁️ 0
UPDATE: Passenger claimed bomb was in luggage before Jet2 plane evacuated at Tenerife South
Further details have emerged about the bomb scare which forced the evacuation of a Jet2 aircraft at Tenerife South Airport yesterday morning (Friday)....
„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 0
„Það er ó­trú­lega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ - Vísir
Fyrsta rauða flaggið Fjölskyldan hafði flutt til Stykkishólms og bjó tímabundið í húsnæði á vegum bæjarins þegar húsið var afhent haustið 2023. Rannve...
Fury vs Joshua: Long-awaited all-British heavyweight fight could be off, says Tyson Fury
📅 26.09.2026 👁️ 1
Fury vs Joshua: Long-awaited all-British heavyweight fight could be off, says Tyson Fury
Tyson Fury says his long-awaited all-British heavyweight fight against Anthony Joshua in December is in jeopardy.
Hafi hafnað til­lögu Írana um opnum Hor­mússunds - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Hafi hafnað til­lögu Írana um opnum Hor­mússunds - Vísir
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, greindi frá því í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að tillagan hefði verið afhent Bandaríkjamönnum ...
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhætta
📅 26.09.2026 👁️ 1
Líkur á snjókomu á Vestfjörðum og áfram skriðuhætta
Víðáttumikil lægð við norðausturströndina beinir norðlægri átt inn yfir norðvesturhluta landsins með talsverðri úrkomu. Vindur verður á bilinu 10–18 m...
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu
📅 26.09.2026 👁️ 1
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu
Tugþúsundir mótmæla áformum Þjóðverja um herskyldu Fréttin26. september 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Tugir þúsunda nemenda gengu út á gö...
Mörgum spurningum ósvarað í einu umtalaðasta morðmáli seinni tíma
📅 26.09.2026 👁️ 1
Mörgum spurningum ósvarað í einu umtalaðasta morðmáli seinni tíma
Þriðjudaginn 24. janúar 2023 var allt tiltækt lið lögreglu og sjúkraliða sent að Summer Street númer 47 í Duxbury, sem er sextán þúsund manna bær í Ma...
Ætlar að banna veðmál í íþróttum
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ætlar að banna veðmál í íþróttum
Forseti Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, tilkynnti í gær um bann við veðmálasíðum á netinu. Bannið nær til allra veðmála í íþróttum.Veðmálamarkaði...
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“
📅 26.09.2026 👁️ 1
Persónusniðin verð: „Sumt af þessu er hálf ógeðfellt“
Þórarinn Stefánsson er framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum og finnst ákveðin mismunun í viðskiptum vera af hinu góða, aft...
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
📅 26.09.2026 👁️ 1
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist Wojciech Jarosz vann á Kefla­vík­ur­flug­velli en eft­ir ör­laga­ríkt frí í Karíbahaf­inu sæk­ir hann n...
Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni segir að þaulsetin og víðáttumikil lægð við norðaustanvert landið beini norðlægri átt yfir landið norðves...
Fluttur til að­hlynningar eftir um­ferðar­slys - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Fluttur til að­hlynningar eftir um­ferðar­slys - Vísir
Slysið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar fjögur sem þjónustar Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, segir í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu u...
Ætla að koma á samskiptavettvangi fyrir atvik sem tengjast gervigreind
📅 26.09.2026 👁️ 1
Ætla að koma á samskiptavettvangi fyrir atvik sem tengjast gervigreind
Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót samskiptavettvangi fyrir atvik sem upp koma tengd gervigreind. Hvíta húsið greindi frá þessu í gær.Fors...
New 478-room family resort opening in Corralejo in November
📅 26.09.2026 👁️ 1
New 478-room family resort opening in Corralejo in November
A new 478-room resort is preparing to open in Corralejo, Fuerteventura, on 1st November, bringing a substantial increase in accommodation capacity to ...
„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
„Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ - Vísir
Hún hefur gengið í gegnum sorg og áföll en finnur fegurðina í þroskanum, leyfir sér að dreyma stórt án þess að það taki yfir og þegar öllu er á botnin...
Óttar Guðmundsson skrifar: Misvægi atkvæða á Alþingi
📅 26.09.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Misvægi atkvæða á Alþingi
Mynd Ísland var um aldir landbúnaðarland þar sem efnaðir bænd
Lokunin á Laugum og viðskipti með skreið til Nígeríu: „Þetta eru piparsúpur hjá þeim“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Lokunin á Laugum og viðskipti með skreið til Nígeríu: „Þetta eru piparsúpur hjá þeim“
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði verið lokað tímabundið. Þetta var efti...
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginni
📅 26.09.2026 👁️ 2
Þriggja bíla árekstur í höfuðborginni
Þriggja bíla árekstur varð í Reykjavík í gær eða nótt. Í dagbók lögreglunnar segir að óskað hafi verið eftir aðstoð vegna áreksturs þriggja bíla í umd...
Þurfa að hreinsa skólp betur
📅 26.09.2026 👁️ 2
Þurfa að hreinsa skólp betur
Ráðast þarf í umfangsmiklar breytingar á fráveitukerfum og hreinsistöðvum á höfuðborgarsvæðinu fyrir lok næsta árs til þess að uppfylla nýjar kröfur. ...
WEEKEND WEATHER: Still hot with light haze and strong winds after a wet Friday
📅 26.09.2026 👁️ 2
WEEKEND WEATHER: Still hot with light haze and strong winds after a wet Friday
The Canary Islands are heading into a cloudier and slightly cooler weekend, although the intense September heat has not disappeared completely and tem...
Disaster declared as heavy rains spark Bangkok flooding
📅 26.09.2026 👁️ 1
Disaster declared as heavy rains spark Bangkok flooding
Days of near continuous downpours have caused widespread flooding in the Thai capital.
Frétta­tía vikunnar: Kíró, tár og ræningja­renna - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Kíró, tár og ræningja­renna - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Rui Pinto: The hacker who tried to take down Manchester City
📅 26.09.2026 👁️ 2
Rui Pinto: The hacker who tried to take down Manchester City
BBC Sport travelled to Portugal to find out more about Rui Pinto - the computer hacker who sparked the Manchester City investigation.
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bregðast við vaxandi tíðni offitu barna
„Kraftmiklir krakkar” er verkefni á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem offita barna er aðalatriðið en tilgangur verkefnisins er að bregðast...
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóða
📅 26.09.2026 👁️ 3
Lýsa yfir hamfaraástandi vegna úrkomu og flóða
Yfirvöld í Bangkok, höfuðborg Taílands, hafa lýst yfir hamfaraástandi í öllum 50 hverfum borgarinnar vegna úrkomu og flóða. Mikil úrkoma hefur verið í...
White House bars CNN from travelling with Trump on Air Force One
📅 26.09.2026 👁️ 3
White House bars CNN from travelling with Trump on Air Force One
CNN was scheduled to fly with US President Donald Trump for his trip to Tennessee on Saturday.
Burnham not doing enough to boost growth, says Starmer ally
📅 26.09.2026 👁️ 3
Burnham not doing enough to boost growth, says Starmer ally
Ex-Business Secretary Peter Kyle calls for more urgency on the economy, as Labour members head to the party's annual conference.
Andy Burnham not doing enough to boost growth, says former business secretary
📅 26.09.2026 👁️ 1
Andy Burnham not doing enough to boost growth, says former business secretary
Ex-Business Secretary Peter Kyle calls for more urgency on the economy, as Labour members head to the party's annual conference.
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekki
📅 26.09.2026 👁️ 3
Segir rafbyssur lokaúrræði þegar vægari aðferðir virka ekki
Sérsveit ríkislögreglustjóra kom lögreglunni til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis á fimmtudag, eftir að tilkynnt var um man...
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds
Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að Íranar hafi boðið Bandaríkjamönnum tillögu sem gæti leitt til þess að Hormússund yrði opnað á ný inn...
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í Kyiv
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sjö drepnir í árásum um hábjartan dag í Kyiv
Sjö voru drepnir og 46 særðust í árásum Rússa á Kyiv í dag. Árásirnar voru gerðar á samgönguinnviði, skrifstofubyggingu og 16 hæða blokk í borginni.Vo...
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph
📅 26.09.2026 👁️ 3
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph
Leiðtogi ensku kirkjunnar heiðraði klerk sem tengist pakistönsku glæpagengi – Telegraph Fréttin26. september 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Hafiz T...
Íbúðarhús hrundi eftir sprengingu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Íbúðarhús hrundi eftir sprengingu
Sex er saknað eftir að íbúðarhús hrundi vegna sprengingar í Aþenu á Grikklandi í dag. Talið er að gasleki hafi orsakað sprenginguna. Borgarstjóri Aþen...
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu
Trump segir Zelensky að hitta Pútín í Moskvu Fréttin26. september 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur að sögn hvatt Vladimi...