Sérsveit ríkislögreglustjóra kom lögreglunni til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis á fimmtudag, eftir að tilkynnt var um mann með hníf sem hafði uppi ógnandi tilburði.
Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri segir að við slíkar aðstæður sé ávallt reynt að tala við viðkomandi fyrst og beita spennulækkandi aðferðafræði. Forðast sé að beita valdi – og notkun rafvopna sé lokaúrræði þegar vægari aðferðir virki ekki.
Maðurinn hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu og var að lokum yfirbugaður með piparúða og rafbyssu. Hann var færður í varðhald og látinn laus að lokinni skýrslutöku í gærmorgun.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er maðurinn íslenskur og á fimmtugsaldri.