Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að Íranar hafi boðið Bandaríkjamönnum tillögu sem gæti leitt til þess að Hormússund yrði opnað á ný innan viku. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hafnað tillögunni.
Araghchi sagði í viðtali við fjölmiðla í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að tillagan hefði verið kynnt Bandaríkjamönnum með milligöngu Katara. Tillagan er sjö daga áætlun og ef eftir henni verði farið verði hægt að opna Hormússund eftir viku.
Araghchi sagði að boltinn væri hjá Bandaríkjamönnum en Íranar láti ekki þvinga sig og sætti sig ekki við hótanir eða þvinganir. Íran ætli ekki að gefa frá sér fullveldi sitt undir þrýstingi.
Birti mynd af Trump-sundi á samfélagsmiðli sínum
The Wall Street Journal hefur eftir bandarískum embættismönnum að Bandaríkjaforseti hafi hafnað tillögunni. Forsetinn er sagður efast um að stjórnvöld í Teheran gangi að kröfum hans. Hann gerir ráð fyrir að halda áfram með loftárásir á Írana að loknum þingkosningum í nóvember.
Í nótt birti hann svo mynd af landakorti á samfélagsmiðlinum Truth Social, þar sem búið var að merkja Hormússund sem Trump-sund.
Vilja endurvekja viljayfirlýsinguna
Breska ríkisútvarpið segir að tillaga Írana byggi á viljayfirlýsingunni sem Bandaríkin og Íran undirrituðu í júní. Í viljayfirlýsingunni var meðal annars kveðið á um að Bandaríkin, Íranar og bandamenn þeirra myndu hætta öllum vopnuðum átökum, auk þess sem Bandaríkjamenn myndu létta herkvíum sínum og dregið yrði úr refsiaðgerðum.
Þá áttu Íranar að tryggja örugga för skipa um Hormússund og komast að samkomulagi við Ómana um fyrirkomulag siglinga í framtíðinni. Viljayfirlýsingin var þó ekki lengi í gildi og stuttu síðar hófust árásir að nýju á milli Írana og Bandaríkjamanna.