Sjö voru drepnir og 46 særðust í árásum Rússa á Kyiv í dag. Árásirnar voru gerðar á samgönguinnviði, skrifstofubyggingu og 16 hæða blokk í borginni.
Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu fordæmir árásirnar og segir þær villimannslegar og að engin hernaðarleg rök réttlæti þær.
Rússar hafa að mestu gert árásir á nóttunni en árásir að degi til hafa færst í aukana. Nýþróaðir drónar Rússa, knúnir þotuhreyflum, hafa verið notaðir í árásum á borgina, en þeir komast framhjá sumum þeirra loftvarnarkerfa sem framleidd eru í Úkraínu.
Þá var einn drepinn í árás í Odesu. Flytja þurfti sjö sjúklinga af sjúkrahúsi í Zaporizhzhia eftir drónaárás sem olli tjóni á sjúkrahúsinu og eldur kviknaði í kjölfarið. Tveir særðust í þeirri árás.
Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Úkraínsk stjórnvöld ætla á næstu dögum að ræða betur við bandamenn sína í Evrópu og bandarísk stjórnvöld ræða við Rússa, sagði Zelenský. Stjórnvöld í Rússlandi staðfestu í dag að mögulegt væri að viðræðurnar yrðu á næstunni.