„Umgjörðin virðist vera aðeins meiri en innihaldið. En það þýðir ekki að þessi fundur hafi verið tilgangslaus. Það verður auðvitað hlé á þessu tollastríði í bili og þetta eru tvö stærstu hagkerfi heims. Og það er okkur öllum til góðs.“
Þetta segir Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun við Háskóla Íslands.
Guðbjörg segir að augljóslega hafi öllu verið tjaldað til við móttöku Xi Jinping, forseta Kína til Bandaríkjanna.
„En þetta segir okkur kannski aðeins meira um ríkiserindreksturinn heldur en valdabaráttuna. Hún er ennþá til staðar,“ segir Guðbjörg í viðtali í kvöldfréttum sjónvarps.
„En það er athyglisvert að Trump hafi tekið á móti Xi á flugvellinum, þegar vaninn er að Bandaríkjaforseti taki á móti þjóðarleiðtogum í Hvíta húsinu. Svo er auðvitað stærsti vináttuvottur í kínverskri utanríkisþjónustu, þessi gjöf á risapöndum,“ segir hún.
Donald Trump Bandaríkjaforseti stóð fyrir hátíðarkvöldverði til heiðurs Xi Jinping forseta Kína og eiginkonu hans, Peng Liyuan, í gærkvöld.
Bandaríkjaforseti sagði af því tilefni að forsetarnir væru meðvitaðir um að þeir væru fulltrúar ólíkra hagkerfa en tengslin milli þjóðanna væru enn til staðar.
Þótt Xi hafi fengið höfðinglegar móttökur í Hvíta húsinu virðist þessi varfærni og yfirvegaði þjóðarleiðtogi Kínverja ekki hafa gefið mikið færi á sér á fundum með hvatvísari og óútreiknanlegri kollega sínum frá Bandaríkjunum.
Ekki virðist mikið hafa verið snert á stærsta þrætueplinu, Taívan, og um gervigreind hefur fátt markvert verið sagt. Þeir náðu þó saman um að fresta áhrifum tollastríðs milli ríkjanna um nokkra mánuði og tvær risapöndur verða fluttar í dýragarð í Atlanta.
Það hefur þó farið nokkuð vel á með Xi og Trump, sem á blaði eiga kannski að heita óvinir. Kína og Bandaríkin eru stórveldi og oftar en ekki á öndverðum meiði í mikilvægum málaflokkum.
„Út frá fréttum frá þessum fundi virðist sem svo að Xi sé að þrýsta á að Bandaríkin hætti vopnasendingum til Taívan. En það er auðvitað yfirlýst markmið Xi Jinping og Kommúnistaflokksins að sameina Taívan meginlandinu á einhverjum tímapunkti,“ segir Guðbjörg.
Stórlaxar úr bankageiranum, olíujöfrar og frammámenn úr Kísildalnum voru meðal gesta í Hvíta húsinu í gær; Sam Altman frá OpenAI, Mark Zuckerberg frá Meta og Jeff Bezos frá Amazon. Með Trump og XI á borði sátu svo Elon Musk, Tim Cook frá Apple og Jensen Huang frá Nvidia, verðmætasta fyrirtæki heims um þessar mundir, sem er einmitt frá Taívan.
Væntanlega líflegar umræður yfir sesamhjúpaða sjóbirtingnum, sem kokkar Hvíta hússins reiddu fram.
En niðurstöður alls þessa íburðar og fundar þessa tveggja valdamestu manna heims – já, eða þá skortur á markverðum niðurstöðum – sýnir kannski best hve grunnt er á því góða milli Kína og Bandaríkjanna. Ríkin tvö eru ekki vinir, í besta falli andstæðingar.
„Allavegana er verið að reyna að minnka spennuna að einhverju leyti. En svo verðum við að sjá hvað kemur út úr þessu til lengri tíma. Það á svolítið eftir að koma í ljós,“ segir Guðbjörg.