Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir

„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur þyrfti að fara úr embætti.

Sagði af sér eftir hjartaaðgerð

Guðmundur Ingi tilkynnti afsögn sína 8. janúar, eftir að hafa gengist undir hjartaaðgerð fyrir jól. Hann vísaði til veikinda og kvaðst ætla að einbeita sér að bata og snúa aftur á Alþingi þegar heilsan leyfði.

Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eru formenn stjórnarflokkanna þriggja. Kristrún sagði við Vísi að brotthvarf Guðmundar hefði verið rætt milli formannanna.Vísir/Viktor Freyr

Við ráðherraskiptin tók Inga við mennta- og barnamálaráðuneytinu en Ragnar Þór Ingólfsson við félags- og húsnæðismálaráðuneytinu af henni.

Boðaði frekari skýringar í september

Guðmundur sagði sig úr Flokki fólksins 13. apríl og vísaði til trúnaðarbrests vegna persónulegra samskipta innan flokksins. Hann situr nú á Alþingi utan flokka.

„Að svo stöddu mun ég ekki tjá mig frekar um þessa ákvörðun,“ sagði hann í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þann dag.

Guðmundur sagði í vor að hann myndi ekki tjá sig frekar um ákvörðun sína að segja skilið við Flokk fólksins. Fimm mánuðum síðar hafði honum snúist hugur. vísir/bjarni

Tæpum fimm mánuðum síðar, 10. september, ræddi hann málið í Morgunvaktinni á Rás 1. Hann tengdi úrsögnina við aðferðina sem hefði verið beitt við brotthvarf sitt úr ráðherrastól og sagðist ætla að gera hreint fyrir sínum dyrum fljótlega.

Hann vísaði einnig til atburða sem vörðuðu fjölskyldu hans og bætti við: „… síðan vatt það upp á sig sem ég mun skýra seinna meir.“

Ólíkar frásagnir af símtali við eiginkonuna

Viku síðar, í viðtali við RÚV 17. september lýsti Guðmundur samskiptum Ingu við eiginkonu sína á þriðja degi jóla. Inga hefði viljað hitta hann á sjúkrastofunni vegna þess að henni þætti hann hafa verið of lengi frá störfum.

„Ég yrði bara að hætta sem ráðherra,“ sagði Guðmundur um erindið. Eiginkona hans hefði hafnað heimsókninni og talið samtalið geta beðið þar til hann kæmi heim.

Í kvöldfréttum RÚV sama dag sagði Inga að hún hefði hringt „til þess að spyrja hvernig Guðmundur hefði það og hvort hann gæti tekið á móti gestum“.

Hún sagði einnig um afsögnina að „það var hann sem sagði því af sér“.

Tvær leiðir í skilaboðum aðstoðarkonunnar

Í gær voru birt skilaboð frá Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, þáverandi aðstoðarkonu Guðmundar. Hún er eiginkona Ragnars Þórs, sem tók sæti í ríkisstjórninni við brotthvarf Guðmundar.

„Þessi ákvörðun er eingöngu valkyrjanna en ekki þeirra sem sitja eftir í flokknum,“ skrifaði hún.

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir var aðstoðarkona Guðmundar Inga. Eiginmaður hennar, Ragnar Þór Ingólfsson, tók sæti í ríkisstjórninni þegar Guðmundur lét af embætti.Vísir

Með valkyrjunum er átt við Ingu, Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, formenn stjórnarflokkanna þriggja.

Guðbjörg lýsti tveimur leiðum: að tilkynna veikindaleyfi og snúa aftur á Alþingi þegar heilsan leyfði eða fara í stríð. Hún varaði við því að síðari leiðin gæti reynst bæði Guðmundi og flokknum erfið.

Neitaði að leiðtogarnir hefðu ákveðið brotthvarfið

Snorri Másson spurði Ingu á Alþingi í gær hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu tekið sérstaka ákvörðun um að Guðmundur þyrfti að fara. Hann spurði einnig hvort Guðbjörg hefði sent skilaboðin að eigin frumkvæði og í óþökk Ingu.

Auk neitunarinnar í upphafi svarsins sagði Inga:

„Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sjálfur af sér embætti.“

Stefán Vagn Stefánsson hafði spurt Ingu hvort hún hefði haft afskipti af afsögn Guðmundar og vísað til skilaboða aðstoðarkonunnar.

Í fyrra svari sínu til hans á Alþingi í gær kallaði Inga skilaboðin „einstaklega hlý og falleg“.

Inga Sæland fundaði með Guðmundi Inga og Kristrúnu Frostadóttur um stöðuna í ráðuneytinu og veikindi hans. „Svarið er nei,“ sagði hún á Alþingi, spurð hvort leiðtogar ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að hann þyrfti að hætta.Vísir/Viktor Freyr

Í síðara andsvari sínu sagði Stefán Vagn að Inga hefði ekki svarað spurningunni. Hann gagnrýndi að hún lýsti skilaboðunum sem hlýjum og fallegum þótt þar væri talað um stríð.

Inga sagði í síðara svari sínu að Stefán Vagn tæki póstinn „úr samhengi“ og bætti við:

„Ég sá ekki þennan póst, ég sá hann bara í fjölmiðlum í morgun.“

Hún kallaði samskiptin „persónuleg skilaboð“ og sagði aðstoðarmann Guðmundar hafa verið „að aðstoða hann eftir bestu getu“. Hún sagði að þau hefðu lagt sig fram við að hjálpa Guðmundi að stíga frá embættinu „með reisn“.

Vísaði til þess að ráðuneytið þyrfti forystu

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins spurði Ingu á Alþingi í gær hvort hún vildi biðja Guðmund eða þjóðina afsökunar á að hafa sagt ósatt.

Í svari sínu vísaði Inga til þess „í hversu stóra aðgerð Guðmundur Ingi fór“. Hún sagði að „mennta- og barnamálaráðuneytið gæti ekki svo vikum og jafnvel mánuðum skipti verið án öruggrar forystu“.

Segir aðstoðarmann Ingu hafa leiðbeint sér um afsögn

Í umfjöllun RÚV um skilaboðin er Sigurjón Arnórsson, aðstoðarmaður Ingu Sæland, sagður hafa rætt við Guðmund um hvernig hann ætti að tilkynna afsögnina. Guðmundur sagði Ingu hafa sent aðstoðarmann sinn til að leiðbeina sér um það.

Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í janúar þar sem hann lét formlega af ráðherraembætti.Vísir/Vilhelm

Í upphafi skilaboða Guðbjargar kom fram að Sigurjón hefði hringt í hana og sagt henni frá samtali sínu við Guðmund.

Guðbjörg sagðist sjálf fyrst hafa frétt af breytingunum þegar frétt birtist á RÚV daginn áður.

Sátu saman vel á annan tíma

Inga lýsti á Alþingi í gær heimsókn sinni og Kristrúnar til Guðmundar eftir að hann kom af sjúkrahúsi. Í ræðu sinni sagði hún um heimsóknina:

Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir funduðu með Guðmundi Inga eftir að hann kom af sjúkrahúsi. Þau sátu saman „vel á annan tíma“, að sögn Ingu á Alþingi, og ræddu stöðuna í ráðuneytinu og veikindi hans.Vísir/Anton Brink

„… þar sem við sátum með honum í vel á annan tíma …“

Um stöðuna að fundi loknum sagði hún að Guðmundur hefði ætlað að „gefa sér stundarkorn til að taka ákvörðun“ um framhaldið.

Kristrún segir ákvörðunina hafa verið rædda

Í viðtali við Vísi í gær sagði Kristrún að brotthvarfið hefði verið rætt milli formanna stjórnarflokkanna og víðar.

Spurð hvort hún hefði orðið vör við þrýsting frá Ingu á Guðmund svaraði hún:

„Guðmundur Ingi tók þessa ákvörðun sjálfur. Þetta var rétt ákvörðun.“

„Guðmundur Ingi tók þessa ákvörðun sjálfur. Þetta var rétt ákvörðun,“ sagði Kristrún Frostadóttir við Vísi í gær. Hún sagði brotthvarfið hafa verið rætt milli formanna stjórnarflokkanna.Vísir/Viktor Freyr

Þegar hún var spurð hvort Inga hefði rætt mögulega afsögn áður en Guðmundur sagði af sér vísaði hún til góðra samskipta formannanna og þess að eðlilegt væri að ræða slík mál þeirra á milli.

Viðbrögð Ingu og Ragnars urðu tilefni birtingarinnar

Guðmundur sagði í viðtali við Vísi í gær að viðbrögð Ingu og Ragnars Þórs hefðu orðið til þess að hann birti skilaboðin. Honum líkaði illa að frásögn hans væri dregin í efa og að sögur gengju um fjölskyldu hans.

Ragnar Þór hafði sagt ummæli Guðmundar ekki svaraverð þegar RÚV leitaði viðbragða hans á þriðjudag. Ragnar Þór sagðist jafnframt ekkert hafa um samskipti eiginkonu sinnar við Guðmund að segja við RÚV.

Segir málinu lokið af sinni hálfu

Guðmundur gagnrýndi í viðtali við Vísi í dag að Inga hefði lýst fundinum með Kristrúnu á Alþingi.

„Þetta var ráðherrafundur sem um gildir trúnaður,“ sagði hann.

Hann kvaðst hafa birt skilaboðin vegna þess að hann hefði talið sig til þess knúinn. Inga hafði ekki þegið viðtalsboð fréttastofu þegar fréttin var birt fyrir hádegi.

„Og nú er þessu bara lokið af minni hálfu,“ sagði Guðmundur.

Fréttastofa hefur reynt í dag að fá viðbrögð frá Ingu Sæland, Kristrúnu Frostadóttir, Ragnari Þór Ingólfssyni auk Guðbjargar Ingu Magnúsdóttur en án árangurs. 

#guðmundur #hver #ingi #ákvað #ætti


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262939817d/hver-akvad-ad-gudmundur-ingi-aetti-ad-haetta-

📰 Aðrar fréttir

Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 0
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 0
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 0
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 0
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 0
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 1
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 1
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 1
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 1
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 1
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 1
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 1
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
📅 25.09.2026 👁️ 1
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 1
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 1
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
📅 25.09.2026 👁️ 1
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um ...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
📅 25.09.2026 👁️ 1
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
Nicholas Brandram's family say he took his own life due to the "pressure" of a police investigation.