Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á Vestfjörðum hefur stöðvað í umdæminu það sem af er þessu ári.
Plönturnar í fullri stærð
Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit í heimahúsi í Bolungarvík á miðvikudag vegna gruns um ræktun kannabisplantna. Við húsleit fundust tugir kannabisplantna sem virtust komnar í fulla stærð.
Þetta kemur fram í Facebook færslu lögreglunnar á Vestfjörðum. Þar kemur einnig fram að miðað við magnið megi ætla að afurð ræktunarinnar hafi átt að fara í dreifingu og sölu.
Lögregla lagði hald á plönturnar ásamt búnaði sem tilheyrði ræktuninni.
„Einn aðili, húsráðandi, var handtekinn og færður til yfirheyrslu í tengslum við rannsókn málsins. Manninum var sleppt að lokinni vettvangsrannsókn og yfirheyrslum og telst málið upplýst,“ segir í færslunni.
Þriðja kannabisræktunin sem lögregla finnur í umdæminu
Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á Vestfjörðum hefur fundið og stöðvað í umdæminu það sem af er árinu.
Á Facebook kemur einnig fram að lögreglan þiggi allar ábendingar um slíka starfsemi. Það má bæði hafa beint samband við lögregluna á Vestfjörðum með því að hringja í 112 og óska eftir samtali við lögregluna í umdæminu eða skilja eftir skilaboð í sameiginlegu talhólfi lögreglunnar, sem er 800 5005. Nafnleynd er lofað.