Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún piparúða og rafbyssu til að yfirbuga hann. Samkvæmt heimildum fréttastofu er maðurinn íslenskur og á fimmtugsaldri. Sjónarvottar segja að hann hafi ekki tekið hnífinn úr umbúðum nema að hluta.
Starfsfólks Hagkaups varð ekki vart við það þegar maðurinn var yfirbugaður af lögreglu við verslunina í gær. Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir að upplýsingar úr myndavélakerfi verslunarinnar sýni að maðurinn hafi farið inn í búðina, keypt þar brauðhníf ásamt öðru og síðan gengið út. Starfsfólk varð ekki vart við neitt óeðlilegt að sögn Sigurðar, sem heyrði fyrst af atburðinum í gegnum fréttir RÚV. Þar sem ekkert gerðist inni í búðinni var viðbragðsáætlun Hagkaups ekki virkjuð.
Upplýsingar um hversu oft rafbyssum hefur verið beitt það sem af er þessu ári liggja ekki fyrir, en samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra drógu lögreglumenn rafbyssur 30 sinnum úr slíðri á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og beittu þeim fimm sinnum. Aldrei hefur rafbyssum verið beitt eins oft á einum ársfjórðungi.