„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.
Hún ræðir um sögulegan dóm sem féll í Hæstarétti Íslands á miðvikudaginn þar sem henni voru dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019.
Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læknisfræði og hafði unnið sem læknir. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þessar tekjutengdu greiðslur sem byggðu á vinnu hennar í Danmörku heldur einungis lágmarksgreiðslur. Greiðslurnar sem hún fékk byggðu á því að hún hefði verið tekjulaus og var þetta vegna þess að í ákvörðun sjóðsins var eingöngu horft til tekna á Íslandi. Þetta taldi hún vera brot á EES-samningnum.
Anna Bryndís segir að þegar hún fékk þessa niðurstöðu hafi henni fundist brotið á hennar rétti og að hún hafi ákveðið að leita réttar síns. Þetta var árið 2019. Hún segir að Læknafélag Íslands hafi veitt henni fjárhagslegan stuðning í málinu enda skipti mál hennar miklu fyrir íslenska lækna sem margir hverjir fara í sérnám erlendis.
Fjallað er um mál Önnu Bryndísar og rætt við hana í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Tengslin við bókun 35
En hvaða máli skiptir þessi dómur í stóra samhengi hlutanna og er hann sögulegur?
Gunnar Þór Pétursson er prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti. Hann segir dóminn í máli Önnu Bryndísar vera sögulegan að mörgu leyti og að hann hafi mögulega pólitískar afleiðingar.
Með þessum orðum vísar hann til bókunar 35 sem hefur verið stórt deilumál í íslenskum stjórnmálum um árabil. Bókun 35 snýst um innleiðingu á reglum og skuldbindingum EES-samningsins á Íslandi og sambandi þessara reglna við landslög.
Fyrsta skipti sjö manna dómur
Gunnar Þór vísar í svörum sínum til tveggja dóma sem hafa fallið í máli Önnu Bryndísar í Hæstarétti.
Fyrri dómurinn féll árið 2024 en í honum sýknaði sjö manna Hæstiréttur íslenska ríkið af þeirri kröfu Önnu Bryndísar að fella niður niðurstöðu fæðingarorlofssjóðs um greiðslurnar til hennar.
Í þeim dómi segir Hæstiréttur hins vegar að mögulega kunni íslenska ríkið að vera skaðabótaskylt í málum þar sem fólk fer á mis við réttindi sín vegna þess að skuldbindingar EES-samningsins hafi ekki verið með réttum hætti innleiddar í íslensk lög.
Um þennan dóm segir Gunnar Þór: „Mér finnst báðir þessar dómar vera mikilvægir. Fyrri dómurinn er sögulegur. [...] Þetta er fyrsti dómurinn þar sem þeir telja að það eigi að sitja þar sjö dómarar. Og líka hvernig dómstóllinn fer yfir þetta mál með ítarlegum hætti og gefur skýr skilaboð með rökstuddum hætti hver staðan er. Að því leytinu til er hann mjög mikilvægur,“ segir Gunnar Þór en í þessu máli var í fyrsta skipti ákveðið að sjö dómarar í Hæstarétti Íslands ættu að kveða upp dóminn. Hann segir að þetta bendi til að rétturinn hafi talið mál Önnu Bryndísar afar mikilvægt og fordæmisgefandi.
Anna Bryndís ákvað svo að höfða skaðabótamál eftir þennan dóm árið 2024 þrátt fyrir að íslenska ríkinu hafi ekki verið gert að fella niður ákvörðun fæðingarorlofssjóðs í máli hennar. „Mér fannst brotið á mínum rétti. Að mínu mati var þetta mikið prinsippmál. Að minn réttur sé tryggður sem íslenskur ríkisborgari. Að ég þurfi að líða fyrir það að löggjafinn á Íslandi á Íslandi hafi ekki innleitt að fullu hluta EES-samningins. Þannig að mér fannst ég þurfa að leita míns réttar.“
Anna Bryndís segir að það hafi ekki komið til greina hjá henni að gefast upp eftir sýknudóminn yfir ríkinu árið 2024.
Með dómi Hæstaréttar Íslands nú á miðvikudaginn fékk Anna Bryndís dæmdar tæpar þrjár milljónir í skaðabætur auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Þessi upphæð var mismunurinn á þeim fæðingarorlofsgreiðslum sem hún átti að fá miðað við laun sín í Danmörku og þeim greiðslum sem Fæðingarorlofssjóður ákvarðaði henni.
Hún segir málið hins vegar ekki snúast um þessa peninga heldur um prinsipp.