Ráðherrar veita ekki viðtöl eftir reglulegan ríkisstjórnarfund í dag. Ríkisstjórnin fundar venju samkvæmt á þriðjudögum og föstudögum og eftir flesta fundi býðst fjölmiðlum að taka viðtöl við ráðherrana. Fjölmiðlar þurfa þá að upplýsa aðstoðarmenn um hverja verður rætt við og um hvað. Oft getur reynst erfitt að fá viðtöl við ráðherra á öðrum tímum.
Þrír ráðherrar eru fjarverandi á fundinum í dag; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er í New York á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og þá eru Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ekki á fundinum.
Sighvatur Arnmundsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að tímaskortur sé ástæða þess að ráðherrar veiti ekki viðtöl. Aðrir fundir séu á dagskrá eftir ríkisstjórnarfund, sem sem sé venjulegt á föstudögum. Hann segir fjölmiðla geta heyrt í aðstoðarmönnum upp á möguleg viðtöl seinna í dag.
Erfitt að ná tali af ráðherrum
Hart var sótt að Ingu Sæland á Alþingi í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær. Stjórnarandstaðan krafði hana svara um aðdragandann að afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti, eftir umfjöllun fréttastofu um skilaboð sem honum bárust frá aðstoðarmanni sínum.
Í skilaboðunum segir að Guðmundur hafi tvær leiðir í stöðunni: að tilkynna um afsögn eða stríð. Hann sagði af sér sem ráðherra degi síðar. Ragnar Þór átti einnig að sitja fyrir svörum í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær, en var fjarverandi vegna veikinda.
Fréttastofa hefur reynt að ná tali af Ragnari Þór og eiginkonu hans Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga, án árangurs.
Þá hefur fréttastofa reynt að fá viðtal við Ingu Sæland í gegnum aðstoðarmenn og framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins en ekki fengið svör. Eins hafa aðstoðarmenn Eyjólfs Ármannssonar, innviðaráðherra og þingmanns Flokks fólksins, ekki svarað símtölum.
Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu sagði að fjórir ráðherrar hafi verið fjarverandi. Rétt er að þrír ráðherrar voru fjarverandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er komin til landsins og var á fundinum í morgun.