Fyrsti fundur fer fram í Öskju í Vatnsmýri í dag, föstudaginn 25. september kl. 11:30 til 13:00. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Fundirnir eru mánaðarlegir og eru öllum opnir. Þeir eru á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
Dagskrá fundarins:
- Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands – Frá sjálfsvígshugsunum til forvarna: Hvað vitum við og hvað vantar okkur að vita?
- Patrekur Örn Gestsson, rannsóknarmaður hjá Miðstöð í lýðheilsuvísindum – Tengsl áfalla í æsku við sjálfsvígshegðun kvenna
- Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnisstjóri embættis landlæknis – Tölfræði og aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi
- Steinn Thoroddsen Halldórsson geðlæknir og yfirlæknir á geðgjörgæsludeild Landspítala – Mat á sjálfsvígshættu og algeng nálgun eftir sjálfsvígstilraunir
- Anna Guðný Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjálp48 hjá Sorgarmiðstöðinni – Stuðningur við aðstandendur eftir sjálfsvíg
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.