Hávær mótmæli hafa brotist út á Spáni eftir að 87 ára gömul kona, sem jafnframt er öryrki, var þvinguð út af heimili sínu í Madrid fyrr í vikunni.
Mótmælin hafa dreifst um fleiri borgir Spánar en mál konunnar, sem er einfaldlega þekkt undir skírnarnafni sínu, Maricarmen, hefur dregið athygli að þeirri miklu húsnæðiskrísu sem landið stendur frammi fyrir.
Maricarmen hafði búið í sömu íbúð í Retiro-hverfinu í miðbæ Madrid í sjö áratugi. Faðir hennar tók íbúðina á leigu árið 1956 en eftir að foreldrar hennar voru fallnir frá tók Maricarmen við íbúðinni. Þak var á leiguverði íbúðarinnar sem nam 500 evrum, eða 68.600 íslenskum krónum.
Hækkuðu leiguna um 430%
Árið 2018 keypti fasteignafélagið Urbagestión húsið og tókst þeim að nýta sér lagaglufu til að hækka leiguna í 2.650 evrur, eða 364.000 íslenskar krónur. Það er 430% hækkun.
Fasteignafélagið lækkaði seinna leiguna í 1.650 evrur, sem jafngildir 226.600 krónum. Maricarmen reyndist engu að síður ógerlegt að mæta þeirri upphæð þar sem öryrkjabætur hennar eru aðeins 1.350 evrur á mánuði, eða 185.400 krónur.
Spænskir dómstólar komu í veg fyrir þrjár tilraunir fasteignafélagsins til að bera hana út og mál hennar hefur vakið sífellt meiri athygli. Allt kom fyrir ekki og að því kom að Maricarmen var gert að yfirgefa íbúð sína vegna vangreiddrar leigu.
Í viðtali sem tekið var við Maricarmen daginn fyrir flutninginn út lýsti hún því sem koma skyldi eins og sveðju sem haldið væri yfir hnakka hennar og brast í grát.
Hávær mótmæli víða á Spáni
Stór hópur mótmælenda safnaðist saman fyrir framan hús hennar á þriðjudagsmorgun til að reyna að koma í veg fyrir að Maricarmen yrði borin út. Lögregla stuggaði þeim frá húsinu með kylfum og Maricarmen var flutt á brott á sjúkrabörum.
Í júní kallaði nefnd Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi eftir því að konunni yrði útvegað annað húsnæði. Borgaryfirvöld greindu frá að Maricarmen hefði hafnað að vera komið fyrir á hjúkrunarheimili. Þá sögðu spænsk stjórnvöld að Urbagestión væri ekki opið fyrir samningaviðræðum um stöðu Maricarmen.
Hávær mótmæli brutust út í Madríd þar sem slegið hefur í brýnu milli mótmælenda og lögreglu sem beitir kylfum til að halda aftur af hópnum. Þá hefur fjöldi fólks safnast saman í borgunum Sevilla, Granada og Alicante í vikunni. Í Barcelona hristi mannfjöldinn lyklakippur til að vekja athygli á málstaðnum.