Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður

Skúli Sveinsson skrifar:
Þann 24. september 2026 birtist á vef RÚV umfjöllun byggð á viðtali við læknana Björn Hjálmarsson og Ragnar Grím Bjarnason, sem starfa í transteymi barna og unglinga á Landspítalanum.
Í umfjölluninni er dregin upp tilfinningaþrungin mynd af starfi læknanna sem vinna að eigin sögn við að hjálpa börnum sem eru „eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“. Ekki er dregið í efa að þessum mönnum gangi gott eitt til og að sjúklingar þeirra þurfi á mikilli aðstoð að halda. En eru störf þeirra þar með hafin yfir gagnrýni?

Skúli Sveinsson lögmaður.
Ég rita þennan pistil sem lögmaður Elds Smára Kristinssonar Isidors, sem hefur haft uppi harða gagnrýni á störf þessara lækna, þá m.a. á lyfjameðferð sem beitt er gagnvart transbörnum, þ.e.a.s. kynþroskabælandi meðferð með svokölluðum hormónablokkerum. Eldur Smári hefur byggt gagnrýni sína á þeim grundvelli að um ógagnreynda meðferð sé að ræða, sem þýðir einfaldlega að ekki liggi fyrir fullnægjandi rannsóknir og þekking á því hvort meðferðin beri raunverulegan árangur til lengri tíma litið eða hvort hún sé yfir höfuð til bóta fyrir sjúklinginn. Á grundvelli þess vill umbjóðandi minn meina að um tilraunastarfsemi sé að ræða á börnum og hefur hann jafnframt gengið svo langt að líkja meðferðinni við barnaníð.
Ekki til nein próf til að sannreyna sjúkdómsgreiningu
Tilgreindir læknar hafa á hinn bóginn borið því við að um lífsnauðsynlega meðferð sé að ræða fyrir þessa sjúklinga og að öll gagnrýni sé byggð á vanþekkingu og fordómum. Í viðtalinu við læknana kom m.a. fram hjá þeim sjálfum að ekki væru til nein próf til að sannreyna sjúkdómsgreiningu og að „barnið ræður för“ varðandi meðferðina. Jafnframt kom fram að „sum skipta um skoðun“, að „engin ein rétt leið sé til að vera trans“ og að meðferðin sé að vissu leyti óafturkræf.
Gagnrýni umbjóðanda míns hefur verið máluð upp sem hatursorðræða þótt hún hafi að meginstefnu til verið málefnaleg og byggð á haldbærum upplýsingum. En hvað hefur umbjóðandi minn fyrir sér varðandi þá gagnrýni sem hann hefur haft uppi?
Varðandi það vísa ég til skýrslu sem bandaríska heilbrigðisráðuneytið, Department of Health and Human Services (HHS), birti þann 19. nóvember 2025. Sú skýrsla heitir: „Treatment for Pediatric Gender Dysphoria“ og fjallar um kynleiðréttandi meðferð barna, þar á meðal grundvöll þeirrar meðferðar, lyfjagjöf og hvað liggur fyrir um afleiðingar hennar.
Hér má nálgast samanteknar niðurstöður umræddrar skýrslu:
Vaxandi alþjóðlegar áhyggjur séu af læknisfræðilegum inngripum
Niðurstöður skýrslunnar, sem er unnin upp úr fyrirliggjandi rannsóknum, eru í samræmi við þá gagnrýni sem Eldur Smári hefur haft uppi varðandi umrædda meðferð. Skýrslan var unnin vegna þess að á undanförnum árum hefur fjöldi barna, sem efast um kyn sitt og skilgreina sig sem trans eða kynsegin, aukist verulega. Mörgum þessara barna, sem greind hafa verið með kynama (e. gender dysphoria), hefur verið boðin meðferð sem kölluð er „kynstaðfestandi meðferð“ (e. gender-affirming care). Sú meðferð felur m.a. í sér gjöf lyfja sem bæla kynþroska, hormónameðferð til að örva kynbundin einkenni hins kynsins og skurðaðgerðir, þar á meðal brjóstnám, kynfæraaðgerðir o.fl. Í skýrslunni segir að þótt frávik frá hefðbundnum kynhlutverkum séu í sjálfu sér ekki líkamleg sjúkdómseinkenni og krefjist því ekki læknismeðferðar, hafi notkun lyfja- og skurðaðgerða við kynama hjá börnum verið kölluð „læknisfræðilega nauðsynleg“ og jafnvel „lífsbjargandi“. Skýrslan bendir á að þessi börn ættu fremur að fá gagnreynda þjónustu (e. evidence-based practice – EBP) og að þær læknisfræðilegu aðferðir, sem nýlega hefur verið farið að beita, hafi sætt verulegri gagnrýni og séu umdeildar.
Í skýrslunni segir að vaxandi alþjóðlegar áhyggjur séu af læknisfræðilegum inngripum hjá börnum og að þær meðferðir séu enn á tilraunastigi. Einnig segir að meðferðirnar geti haft skaðleg áhrif sem ekki hafi verið nægilega rannsökuð, sérstaklega hvað varðar langtímaafleiðingar. Vísað er til þess að heilbrigðisyfirvöld í nokkrum löndum hafi sett takmarkanir á notkun þessara meðferða, til að mynda hafi Bretland bannað hefðbundna notkun kynþroskabælandi lyfja sem meðferð við kynama hjá börnum.
Byggist alfarið á huglægu mati
Bent er á að greining á kynama byggist alfarið á huglægu mati og athugun á hegðun, án hlutlægra líkamlegra mælikvarða. Greiningin beinist því að viðhorfum, tilfinningum og hegðun barnanna, sem vitað er að geta sveiflast á unglingsárum. Að auki er náttúruleg framvinda kynama hjá börnum illa þekkt, þótt fyrirliggjandi rannsóknir bendi til þess að ástandið gangi til baka án inngripa í flestum tilvikum. Skýrslan tekur fram að heilbrigðisstarfsfólk hafi í raun enga leið til að staðfesta hver þessara barna muni halda áfram að upplifa kynama og hver þeirra muni sættast við líkama sinn með tímanum. Engu að síður felur „kynstaðfestandi“ meðferð í sér óafturkræfar hormónagjafir og skurðaðgerðir á ólögráða einstaklingum án líkamlegrar meinafræði. Þessi meðferð felur í sér hættu á verulegum skaða, þar á meðal ófrjósemi, kynlífstruflunum, skertri beinþéttni, neikvæðum áhrifum á vitsmunaþroska, hjarta- og æðasjúkdómum, efnaskiptatruflunum, geðrænum kvillum, hefðbundnum fylgikvillum skurðaðgerða og eftirsjá barnanna. Skýrslan greinir frá því að rannsóknir á tíðni og alvarleika skaðlegra áhrifa séu ófullnægjandi, en einnig er bent á að rannsóknir hafi sýnt fram á verulega óvissu um meintan ávinning þessara inngripa.
Skýrslan fjallar jafnframt um sérstaka tilkomu þess að börn séu látin undirgangast „kynstaðfestandi meðferð“. Þar segir að almennt séu læknisfræðilegar meðferðir fyrst staðfestar sem öruggar og árangursríkar hjá fullorðnum áður en þær eru notaðar á börn. Varðandi „kynstaðfestandi meðferð“ hafi hins vegar hið gagnstæða verið uppi á teningnum, læknar og rannsakendur hafi þróað meðferðarlíkan fyrir börn eftir að í ljós kom ófullnægjandi árangur slíkrar meðferðar hjá fullorðnum sem gengist höfðu undir kynleiðréttingu. Fyrir hafi því legið að meðferðin virkaði ekki sem skyldi hjá fullorðnum, en engu að síður hafi verið farið að beita henni á börn án þess að fullnægjandi gögn lægju fyrir um virkni hennar. Jafnframt hafi meðferðarlíkönin verið tekin upp á alþjóðavísu áður en fyrstu niðurstöðurannsóknir voru birtar um virkni meðferðarinnar hjá börnum.
Í skýrslunni er fjallað um fyrirliggjandi kerfisbundnar yfirlitsrannsóknir sem metnar voru með tilliti til aðferðafræði og gæða. Niðurstöðurnar sýndu að heildargæði gagna um áhrif inngripa á sálræna líðan, lífsgæði, eftirsjá eða langtímaheilsu eru mjög lítil og ófullnægjandi. Þetta bendir til þess að sá ávinningur sem lýst er í fræðiritum geti verið verulega frábrugðinn raunverulegum áhrifum meðferðarinnar.
Í skýrslunni er einnig fjallað um pólitískan aðdraganda „kynstaðfestandi meðferðar“ og að hagsmunaárekstrar hafi verið til staðar hjá þeim aðila sem gefið hefur út klínískar leiðbeiningar, þ.e. World Professional Association for Transgender Health (WPATH, Standards of Care). Nær öll ráðlögð lágmarksaldursviðmið fyrir lyfjameðferð og skurðaðgerðir hafi verið felld niður vegna pólitísks þrýstings. Þá hafi reynslu og frásögnum einstaklinga sem hætt hafa við eða snúið til baka eftir kynleiðréttingu (detransitioners) ekki verið veitt nægjanleg athygli. Áhyggjum þeirra og reynslu hafi oftast verið vísað á bug, þær lítilsvirtar eða hunsaðar af áberandi talsmönnum slíkra meðferða. Í skýrslunni segir að tiltekin bandarísk læknasamtök hafi gegnt lykilhlutverki í að skapa þá mynd að fagleg samstaða ríkti um stuðning við læknisfræðilega kynleiðréttingu barna, en raunin sé sú að hún byggist að miklu leyti á vinnu fárra sérhæfðra nefnda sem verið hafa undir áhrifum frá WPATH. Jafnframt séu vísbendingar um að sum lækna- og geðheilbrigðissamtök hafi þaggað niður andstæð sjónarmið og dregið úr umræðu meðal félagsmanna sinna.
Sönnunargögn um ávinning læknisfræðilegra inngripa hjá börnum séu afar óviss
Í skýrslunni segir að sönnunargögn um ávinning læknisfræðilegra inngripa hjá börnum séu afar óviss en minni óvissa ríki um skaðann sem meðferðin getur valdið. Jafnframt segir að þótt því hafi verið haldið fram að eftirsjá sé sjaldgæf sé raunveruleg tíðni hennar óþekkt og þörf sé á betri gagnaöflun. Verulegur skortur sé á traustum vísindalegum gögnum. Ein helstu rökin sem haldið hefur verið á lofti fyrir beitingu kynstaðfestandi meðferðar hafa verið þau að hún dragi verulega úr sjálfsvígshættu hjá börnum og ungmennum, en skýrslan tekur fram að engin sjálfstæð tengsl hafi fundist milli kynama og sjálfsvígshættu, og engin gögn sýni að læknisfræðileg inngrip dragi úr tíðni sjálfsvíga.
Umrædd skýrsla er einungis ein af fjölmörgum skýrslum og rannsóknum sem nýlega hafa komið fram og komast að sambærilegri niðurstöðu um þá meðferð sem börn hafa fengið við kynama. Eins og framangreind umfjöllun leiðir í ljós getur meðferðin leitt til ófrjósemi barna, hvort sem er með lyfjagjöf eða skurðaðgerðum. Meðferðin er í reynd ógagnreynd, ekki liggja fyrir rannsóknir eða gögn sem sýna fram á ótvíræða gagnsemi hennar, en vísbendingar eru um að hún bæti hvorki líðan né heilsu barna til lengri tíma litið á meðan skaðleg áhrif hennar eru vel þekkt.
Tlfinningaþrungin orðræða má aldrei yfirgnæfa mikilvægi þess að ræða grundvallarspurningar
Undanfarna daga hefur enn og aftur spunnist mikil umræða um málefni barna og ungmenna með kynama í kjölfar opinberrar umfjöllunar og viðtala, m.a. á RÚV. Þegar rætt er um viðkvæma stöðu barna og réttindi þeirra er eðlilegt að tilfinningar séu sterkar. Hins vegar má aldrei láta tilfinningaþrungna orðræðu yfirgnæfa mikilvægi þess að ræða grundvallarspurningar um heilsu, velferð og langtímaafleiðingar læknisfræðilegra inngripa hjá börnum á faglegum og gagnrýnum nótum.
Sjónarmið Elds Smára Kristinssonar hafa sætt harðri gagnrýni og málshöfðunum, þar sem reynt hefur verið að draga upp þá mynd að gagnrýni á svokallaða „kynstaðfestandi meðferð“ barna spretti af fordómum eða illvilja. Slík nálgun er bæði villandi og ósanngjörn. Nauðsynlegt er að leiða fram þær staðreyndir og rök sem liggja til grundvallar málflutningi Elds Smára.
Kjarni gagnrýninnar snýr að því að ógagnreyndum, óafturkræfum lyfja- og skurðaðgerðum
Kjarni gagnrýninnar snýr að því að ógagnreyndum, óafturkræfum lyfja- og skurðaðgerðum hafi verið beitt gagnvart börnum og unglingum án þess að fyrir liggi fullnægjandi vísindalegar sannanir um ávinning þeirra. Á undanförnum árum hafa virt heilbrigðisyfirvöld í nágrannalöndum okkar stigið á bremsuna. Í Bretlandi leiddi hin ítarlega Cass-skýrsla (Cass Review) til þess að breska heilbrigðiskerfið (NHS) hætti reglubundinni notkun kynþroskabælandi lyfja fyrir börn og unglinga vegna skorts á sönnunum um gagnsemi og verulegrar hættu á skaðlegum langtímaáhrifum. Sams konar stefnubreyting hefur átt sér stað í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi.
Í nýlegum skýrslum og kerfisbundnum yfirlitsrannsóknum, þar á meðal samantekt bandaríska heilbrigðisráðuneytisins (HHS) um meðferð við kynama hjá börnum, kemur berlega í ljós að gæði rannsókna sem styðja læknisfræðileg inngrip hjá börnum eru afar rýr. Á sama tíma eru skaðleg áhrif sem meðferðirnar geta valdið, svo sem ófrjósemi, skert beinþéttni, kynlífstruflanir og varanlegar líkamsbreytingar, þekkt og ótvíræð. Greining á kynama byggist á huglægu mati og hegðun á unglingsárum, tímabili þar sem sjálfsmynd og tilfinningar eru í miklu umróti. Rannsóknir sýna að mikill meirihluti ungs fólks vex upp úr vanlíðan sinni fái það viðeigandi sálrænan stuðning án ótímabærra læknisfræðilegra inngripa.
Málflutningur Elds Smára á sér rætur
Málflutningur Elds Smára á sér einnig rætur í eigin lífsreynslu hans sem samkynhneigðs manns og áhyggjum af þróun hinsegin samfélagsins. Í gegnum tíðina hafa mörg samkynhneigð börn upplifað að þau passi ekki inn í hefðbundin kynhlutverk á uppvaxtarárum sínum. Þegar því er haldið fram að barn sem fellur ekki að staðalímyndum kynjanna sé í raun „fætt í röngum líkama“ og þurfi lyfjagjöf til að leiðrétta það, telur umbjóðandi minn að með því sé í reynd vegið að tilverugrundvelli samkynhneigðra. Eðlilegt og heilbrigt þroskaferli ungra samkynhneigðra einstaklinga má því ekki vera sjúkdómsgert eða meðhöndlað sem sjúklegt frávik sem þarfnist líkamlegra inngripa, né má kæfa opinbera umræðu og málefnalega gagnrýni.
Málstaður Elds Smára snýst ekki um andúð heldur um grundvallarvernd barna, varúðarreglu í læknisfræði og réttinn til að gagnrýna hugmyndafræði sem getur haft óafturkræfar afleiðingar fyrir líf og heilsu ungs fólks.
Sú umræða á fullt erindi við íslenskt samfélag og hana má ekki þagga niður.