Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra. Það hlutfall hafði þá ekki farið undir 70% síðan 2002 og ekki verið lægra síðan 2001 þegar skuldir fjölskyldnanna voru 69,3% af landsframleiðslu.
Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar þar sem skuldir og eignir eru metnar.
Meðalfjölskyldan átti 60,4 milljónir króna í fyrra þegar verðmæti fasteigna, ökutækja, innstæðna í bönkum og verðbréfa voru lögð saman. Meðalfjölskyldan skuldar 14,7 milljónir.
Elsta fólkið á mestar eignir að meðaltali, 111 milljónir, en eignir yngsta aldurshópsins jukust mest.