Rætt verður við Guðmund Inga í hádegisfréttum Bylgjunnar en þar ræðir tjáir hann sig um viðbrögð Ingu Sæland og umræðuna um málið á Alþingi í gær.
Sjúkratryggingar og SÁÁ ætla að endurskoða samninga sín á milli eftir fjaðrafok í kringum starfsemi samtakanna síðustu vikurnar. Formaður SÁÁ verður í viðtali í hádegisfréttum þar sem fram kemur að mönnunarvandi er enn til staðar hjá samtökunum.
Flugvirkjar og Icelandair funda í fyrsta sinn í dag eftir að verkfallsaðgerðum var aflýst fyrr í vikunni og ríkissáttasemjari segir mikilvægt að halda til haga að ekki sé byrjað á núlli í viðræðunum. Þá verður fjallað um atvinnuleysi hér á landi en atvinnulausum íslenskum ríkisborgurum hefur fjölgað mikið síðasta árið.
Kvikmyndahátíðin RIFF var sett í gær og var opnunarmyndin heimildamynd um för Jons Snorra upp á tind fjallsins K2. Rætt verður við hátíðarstjórnanda í fréttum.
Í íþróttum verður fjallað um Olís-deild karla í handbolta þar sem fram fór Hafnarfjarðarslagur í gær sem og spennandi leiki í Bestu deild kvenna í kvöld.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.