Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum - Vísir

Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum - Vísir

Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum - Vísir

Með fullum jöfnuði er átt við að heildarfjöldi þingmanna hvers flokks sé í samræmi við fylgi flokksins á landsvísu.

Þorkell sat í starfshópi um breytingar á kosningalögum. Hann segir fjölmiðlaumræðuna um tillögur hópsins hafa snúist um of um hvaða kjördæmi og þingmenn hefðu grætt eða tapað ef breytingarnar hefðu gilt í síðustu kosningum.

„Það hefur löngum verið meinið við breytingar á kosningalögum, bæði hér og annars staðar, að sjónum er um of beint að því til hvers breytingarnar hefðu leitt í liðnum kosningum. Það villir sýn.“

Starfshópurinn notaði því svokallaðan kosningahermi. Með honum er hægt að prófa mismunandi aðferðir við úthlutun þingsæta á miklum fjölda tilbúinna kosningaúrslita í stað þess að dæma þau eingöngu út frá fyrri kosningum.

Kjördæmissætin of mörg og jöfnunarsætin of fá

Í dag eru 54 kjördæmissæti og níu jöfnunarsæti. Jöfnunarsætunum er ætlað að ná jöfnuði milli þingflokka miðað við landsfylgi þeirra eftir að kjördæmissætunum hefur verið úthlutað.

Þar er þó takmörkun. Hafi flokkur þegar fengið fleiri kjördæmissæti en landsfylgi hans gefur tilefni til heimilar stjórnarskráin ekki að taka þau sæti af honum við úthlutun jöfnunarsætanna. Jöfnunarsætin geta því ekki leiðrétt slíkt umframsæti eftir á.

„Kjördæmissætin hafa oftast verið of mörg og þá um leið jöfnunarsætin of fá til að tryggja jöfnuð milli þingflokka.“

Stærð þingflokkanna hefði haldist óbreytt ef tillögur starfshópsins hefðu gilt í kosningunum 2024, en sætin hefðu skipst öðruvísi milli kjördæma.Vísir/Viktor Freyr

Fullur jöfnuður náðist ekki í kosningunum 2013, 2016, 2017 og 2021 en náðist árið 2024.

Þorkell nefnir kosningarnar 2016 sérstaklega. Hann segir misvægið þá hafa orðið til þess að ríkisstjórnin náði naumum meirihluta á Alþingi vegna umframsætis eins stjórnarflokksins.

„Tilraunir með Kosningaherminn benda til þess að við því megi búast að með núverandi kosningakerfi óbreyttu náist ekki fullur jöfnuður í um öðrum hverjum þingkosningum.“

Starfshópurinn leggur því til að föst kjördæmissæti verði sex í hverju kjördæmi, sem er lágmarkið samkvæmt stjórnarskránni. Þau yrðu þá 36 alls en hin 27 sæti Alþingis jöfnunarsæti.

Hvað er jöfnunarfærsla?

Önnur tillaga starfshópsins snýr ekki að fjölda jöfnunarsæta heldur því hvernig þeim er komið niður á einstaka framboðslista.

Áður en kosið er liggur fyrir hversu mörg jöfnunarsæti koma í hlut hvers kjördæmis. Eftir kosningar er síðan fundið hversu mörg jöfnunarsæti hver flokkur fær á landsvísu.

Þá stendur eftir að ákveða hvaða flokkslistar í einstökum kjördæmum fá jöfnunarsæti viðkomandi flokks. Þar kemur jöfnunarfærslan til sögunnar.

Starfshópurinn leggur til að fjöldi þingsæta í hverju kjördæmi fylgi breytingum á kjósendafjölda, án þess að Alþingi þurfi að breyta lögum í hvert sinn.Vísir/Viktor Freyr

Samkvæmt jöfnunarfærslunni er fyrst reiknað hvernig öll sæti hvers kjördæmis, bæði kjördæmissæti og jöfnunarsæti, myndu skiptast milli flokka ef eingöngu væri horft á atkvæðin í því kjördæmi.

Þegar niðurstöðurnar í öllum kjördæmum eru lagðar saman getur hins vegar komið í ljós að einstakir flokkar fá fleiri eða færri þingmenn en landsfylgi þeirra gefur tilefni til.

Þá þarf að leiðrétta niðurstöðuna svo jöfnuður náist milli flokkanna á landsvísu. Jöfnunarfærslan gengur út á að velja hvar sú leiðrétting fer fram þannig að úrslitum í einstökum kjördæmum sé raskað sem minnst.

„Við í starfshópnum göngum út frá því sem markmiði að úthlutun þingsæta hvers kjördæmis, að jöfnunarsætunum meðtöldum, eigi að vera í sem fyllstu samræmi við úrslitin í viðkomandi kjördæmi og að inngrip til að ná jöfnuði milli flokka á landsvísu valdi sem minnstri röskun.“

Þetta er forsenda sem starfshópurinn leggur til grundvallar.

„Fyrir þessu eru engin bein fyrirmæli, hvorki niðurstöður skoðanakannana né heldur ákvæði í lögum.“

Með jöfnunarfærslu er fyrst reiknað hvernig öll þingsæti hvers kjördæmis myndu skiptast eftir atkvæðunum þar. Sú úthlutun er síðan leiðrétt með sem minnstum breytingum svo heildarfjöldi þingmanna hvers flokks samræmist landsfylgi hans.Vísir/Anton Brink

Sé gengið út frá þeirri forsendu segir Þorkell hægt að sýna stærðfræðilega fram á að engin önnur aðferð raski hreinni kjördæmisúthlutun minna. Með jöfnunarfærslunni sé röskunin eins lítil og verða megi til að ná jöfnuði milli flokka.

Þorkell bendir á kosningarnar 2024 sem dæmi. Samkvæmt gildandi aðferð við úthlutun jöfnunarsæta endaði þá eitt sæti í hverju kjördæmanna sex hjá öðrum lista en þeim sem hefði fengið það ef eingöngu hefði verið horft á úrslitin í viðkomandi kjördæmi.

„Hefði jöfnunarsætunum verið úthlutað með jöfnunarfærslu, en engu öðru breytt, hefði aðeins þurft að hrófla við sæti í einu kjördæmi.“

Í þessu dæmi er aðeins verið að skipta út núverandi aðferð við úthlutun jöfnunarsæta fyrir jöfnunarfærslu. Aðrir þættir kosningakerfisins eru óbreyttir.

Fimm duttu út eftir endurtalninguna 2021

Þorkell segir jöfnunarfærsluna einnig stöðugri en núverandi aðferð. Með því er átt við að smávægilegar breytingar á atkvæðatölum séu síður líklegar til að valda miklum breytingum á því hvaða flokkslistar fá jöfnunarsætin.

Endurtalningin í Norðvesturkjördæmi árið 2021 er dæmi um það.

Atkvæðatölur breyttust þá aðeins lítillega en úthlutun jöfnunarsæta breyttist í fimm af sex kjördæmum.

Guðmundur Gunnarsson úr Viðreisn, Lenya Rún Taha Karim úr Pírötum, Rósa Björk Brynjólfsdóttir úr Samfylkingunni, Hólmfríður Árnadóttir úr Vinstri grænum og Karl Gauti Hjaltason úr Miðflokknum voru inni eftir fyrri talningu en duttu út eftir endurtalninguna.

Guðmundur Gunnarsson, Lenya Rún Taha Karim, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Hólmfríður Árnadóttir og Karl Gauti Hjaltason virtust hafa náð kjöri í kosningunum 2021. Eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi fengu fimm aðrir frambjóðendur sætin.

Í þeirra stað komu Bergþór Ólason úr Miðflokknum, Jóhann Páll Jóhannsson úr Samfylkingunni, Orri Páll Jóhannsson úr Vinstri grænum, Guðbrandur Einarsson úr Viðreisn og Gísli Rafn Ólafsson úr Pírötum.

„Hefði jöfnunarsætunum verið úthlutað með jöfnunarfærslu hefði engin breyting orðið við endurtalninguna,“ segir Þorkell.

Sætafjöldinn fylgi kjósendafjölda

Þriðja meginbreyting starfshópsins snýr að því hversu mörg þingsæti koma í hlut hvers kjördæmis.

Starfshópurinn leggur til að skipting sætanna fylgi breytingum á fjölda kjósenda án þess að breyta þurfi lögum í hvert sinn sem breytingar á búsetu kalla á nýja sætaskiptingu.

Alþingi þyrfti fyrst að ákveða í lögum hvort ganga eigi til fulls eða skemur í jöfnun milli kjördæma. Aðaltillaga starfshópsins er fullur jöfnuður, en hópurinn bendir jafnframt á að hægt sé að innleiða breytinguna í áföngum.

Sigurður Ingi Jóhannsson með Kristrúnu Frostadóttur og Bjarna Benediktssyni í kosningasjónvarpinu 2024. Hann virtist um tíma falla af þingi en náði jöfnunarsæti þegar lokatölur bárust úr Suðvesturkjördæmi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, sem hafði verið inni í hans stað, féll þá út.Vilhelm/Vísir

Landskjörstjórn fengi síðan það hlutverk að fara yfir skiptingu þingsæta milli kjördæma að loknum hverjum þingkosningum samkvæmt þeim reglum sem Alþingi hefði sett. Breyting á sætaskiptingunni tæki gildi í næstu kosningum þar á eftir.

„Hafi Alþingi lagt pólitísku línurnar – hvort stefnt skuli að fullum jöfnuði, nánar skilgreindum takmörkuðum jöfnuði eða jöfnun í áföngum – er engin ástæða til að efna til pólitískra deilna í hvert sinn sem breyting á sætaskiptingu er orðin nauðsynleg.“

Sömu þingflokkar en önnur sæti 2024

Þegar allar tillögur starfshópsins eru lagðar á úrslit kosninganna 2024 fæst önnur mynd en í dæminu hér að framan þar sem aðeins var skipt um aðferð við úthlutun jöfnunarsætanna.

Hér er einnig tekið tillit til fjölgunar jöfnunarsæta í 27 og breyttrar skiptingar þingsæta milli kjördæma.

Heildarfjöldi þingmanna hvers flokks hefði engu að síður haldist sá sami og raun varð á. Samfylkingin hefði fengið 15 þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn 14, Viðreisn ellefu, Flokkur fólksins tíu, Miðflokkurinn átta og Framsókn fimm.

Willum Þór Þórsson, Jón Gunnarsson, Karólína Helga Símonardóttir, Marta Wieczorek, Heiðbrá Ólafsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson hefðu náð kjöri árið 2024 ef tillögur starfshópsins hefðu gilt, að óbreyttri röð frambjóðenda á listunum.

Það sem hefði breyst er hvaða kjördæmislistar fengju sætin.

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hefðu misst sitt hvort sætið í Norðausturkjördæmi en fengið sæti í Suðvesturkjördæmi. Miðflokkurinn hefði misst sæti í Norðausturkjördæmi en fengið annað í Suðurkjördæmi.

Viðreisn hefði misst sæti í Reykjavík norður en fengið viðbótarsæti í Suðvesturkjördæmi. Flokkur fólksins hefði misst sæti í Norðvesturkjördæmi en fengið annað í Reykjavík norður. Samfylkingin hefði misst sæti í Suðurkjördæmi en fengið viðbótarsæti í Suðvesturkjördæmi.

Þessar sætafærslur koma fram í skýrslu starfshópsins.

Sé síðan horft til þess hverjir voru næstir inn og út á viðkomandi framboðslistum miðað við þessar sætafærslur hefðu Willum Þór Þórsson, Jón Gunnarsson, Karólína Helga Símonardóttir, Marta Wieczorek, Heiðbrá Ólafsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson komið inn.

Þórarinn Ingi Pétursson, Njáll Trausti Friðbertsson, Grímur Grímsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir hefðu þá setið eftir.

Afdrif einstakra frambjóðenda eru hér miðuð við hverjir voru næstir inn eða út á viðkomandi listum miðað við þessar sætafærslur, með fyrirvara um áhrif persónukjörsins.

Hvað ef breytingarnar verða ekki samþykktar?

Þorkell segir ekki að núverandi kosningakerfi sé ónothæft verði tillögurnar ekki samþykktar.

„Auðvitað fer ekkert beinlínis úrskeiðis. Gildandi lög standa fyrir sínu.“

Án breytinga yrði hins vegar ekki frekari jöfnun á misvægi atkvæða eftir búsetu. Hvort fullur jöfnuður næðist milli þingflokka yrði áfram háð úrslitum hverra kosninga og mikið flakk sæta milli frambjóðenda við litlar atkvæðabreytingar gæti haldið áfram.

#ekki #hverjum #jöfnuður #næst #öðrum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262939311d/jofnudur-naest-ekki-i-um-odrum-hverjum-kosningum

📰 Aðrar fréttir

Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 0
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...
Prís fyrstir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Prís fyrstir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Some BBC channels and radio stations 'may well' have to close, director general says
📅 25.09.2026 👁️ 0
Some BBC channels and radio stations 'may well' have to close, director general says
The BBC's financial situation "may well mean" some channels and stations close, Matt Brittin says.
„Það voru margir með tár á hvarmi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Það voru margir með tár á hvarmi“ - Vísir
Setningarathöfn Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík eða Riff fór fram með pompi og prakt í gær. Dagskráin í ár er sérstaklega vegleg og þá ha...
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal - Vísir
Rætt var um aðdraganda afsagnar Guðmundar Inga Kristinssonar úr embætti barna- og menntamálaráðherra á Alþingi í gær og sást Guðmundur hrista hausinn ...
Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku - Vísir
Upplausn hefur ríkt innan SÁÁ sem rekur meðferðarstofnanir við fíknivanda. Bæði forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga létu nýlega af störfum vegna ós...
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað
Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat í sæti Íslands meðan Netanjahú flutti ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Send...
Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Reyna að banna arabíska stjórn­mála­flokka - Vísir
Meirihluti nefndarinnar greiddi atkvæði með því að banna tvo lista fyrir kosningarnar og að meina einstökum arabískum stjórnmálamönnum að bjóða sig fr...
Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðu­stól Al­þingis - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðu­stól Al­þingis - Vísir
Rætt verður við Guðmund Inga í hádegisfréttum Bylgjunnar en þar ræðir tjáir hann sig um viðbrögð Ingu Sæland og umræðuna um málið á Alþingi í gær. Sjú...
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður
📅 25.09.2026 👁️ 0
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður
Til varnar þeim röddum sem þagga skal niður Fréttin25. september 2026Innlent, PistlarLeave a Comment Samsett mynd: fh. Eldur Smári Kristinsson, Snorri...
Stefna að því að innrita fólk á Vog í næstu viku
📅 25.09.2026 👁️ 0
Stefna að því að innrita fólk á Vog í næstu viku
Ekki hefur verið hægt að leggja fólk inn á Vog þessa vikuna vegna skorts á starfsfólki. Ekki verður heldur hægt að taka inn fólk í næstu viku eins og ...
Mótmælt á Spáni – leigjandi borinn út eftir 70 ára búsetu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mótmælt á Spáni – leigjandi borinn út eftir 70 ára búsetu
Hávær mótmæli hafa brotist út á Spáni eftir að 87 ára gömul kona, sem jafnframt er öryrki, var þvinguð út af heimili sínu í Madrid fyrr í vikunni.Mótm...
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna
Ítalía og Frakkland hrekja fregnir um að CIA hafi varað við ógn af völdum rússneskra dróna Fréttin25. september 2026ErlentLeave a Comment „Enginn þarf...
Bein út­sending: Sjálfs­víg á Ís­landi – staðan, for­varnir og leiðin fram á við - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Sjálfs­víg á Ís­landi – staðan, for­varnir og leiðin fram á við - Vísir
Fyrsti fundur fer fram í Öskju í Vatnsmýri í dag, föstudaginn 25. september kl. 11:30 til 13:00. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspít...
Aðhaldskrafan meiri en féð sem á að efla háskólastigið
📅 25.09.2026 👁️ 0
Aðhaldskrafan meiri en féð sem á að efla háskólastigið
Stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla skorar á Alþingi að falla frá 1.351 milljónar króna aðhaldskröfu á háskóla og rannsóknarstarfsemi. Aðhaldskr...
Engin viðtöl og þrír ráðherrar fjarverandi á fundi
📅 25.09.2026 👁️ 0
Engin viðtöl og þrír ráðherrar fjarverandi á fundi
Ráðherrar veita ekki viðtöl eftir reglulegan ríkisstjórnarfund í dag. Ríkisstjórnin fundar venju samkvæmt á þriðjudögum og föstudögum og eftir flesta ...
Ekkert gat undirbúið Þórð fyrir það sem var í vændum eftir að Facebook stal frá honum 100 þúsund krónum
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ekkert gat undirbúið Þórð fyrir það sem var í vændum eftir að Facebook stal frá honum 100 þúsund krónum
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hefur staðið í stappi undanfarið við tæknifyrirtækið Meta eftir að Facebook stal...
Einn besti kappátsmaður sögunnar fallinn frá 49 ára – Þetta var dánarorsökin
📅 25.09.2026 👁️ 0
Einn besti kappátsmaður sögunnar fallinn frá 49 ára – Þetta var dánarorsökin
Tim Janus, einn besti kappátsmaður heims, er látinn aðeins 49 ára. Janus vann sér það til dæmis til frægðar að borða 54 pylsur í einni máltíð.Breska b...
Valkyrjur brugga launráð
📅 25.09.2026 👁️ 1
Valkyrjur brugga launráð
Valkyrjur brugga launráð Fréttin25. september 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Guðmundur Ingi mennta- og barna...
Jay-Z rape accuser formally withdraws allegation
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jay-Z rape accuser formally withdraws allegation
A woman who accused Jay-Z of raping her when she was 13 now says she has never met the rap superstar.
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall
📅 25.09.2026 👁️ 1
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall
Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 10. Þetta er fyrsti fundur samninganefndanna síðan samkomulag náðist...
Þrýstingur á að minnka upptöku- og innleiðingarhalla
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þrýstingur á að minnka upptöku- og innleiðingarhalla
Vaxandi þungi virðist vera í þeim skilaboðum sem koma frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að EES-ríkin þrjú, Ísland, Noregur og Liechtenstein, þ...
Gugga í gúmmí­bát hand­tekin á frum­sýningu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gugga í gúmmí­bát hand­tekin á frum­sýningu - Vísir
Þættirnir eru sýndir á streymisveitunni Sýn+ og kemur fyrsti þáttur inn í dag. Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í fjölbreyttum og ó...
Svín út um allt í fal­legu ein­býli Björns Braga - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Svín út um allt í fal­legu ein­býli Björns Braga - Vísir
Hann hefur komið sér vel fyrir í fallegu einbýlishúsi úti á Seltjarnarnesi. Björn er augljóslega mikill smekkmaður enda er húsið fallega hannað að inn...
Daniel Thomas pleads not guilty after dinghy slashed in Channel
📅 25.09.2026 👁️ 1
Daniel Thomas pleads not guilty after dinghy slashed in Channel
Daniel Thomas is accused of criminal damage after a video appeared to show him slashing at a dinghy.
„Við erum ekki að byrja á núlli“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Við erum ekki að byrja á núlli“ - Vísir
Í samtali við Ástráð skömmu áður en fundur hófst sagði hann að unnið yrði á þeim grundvelli sem búið var að setja saman í innanhústillögu um síðustu h...
Þriggja turna þras í fursta­dæmunum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þriggja turna þras í fursta­dæmunum - Vísir
Í viðtali við úkraínskan miðil í morgun sagði Selenskí að hann hefði fengið þau skilaboð frá ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum að þar væri von...
Fimm ára dómur Norberts stað­festur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm ára dómur Norberts stað­festur - Vísir
Með dómi Landsréttar í gær var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember í fyrra staðfestur. Reifun á honum má sjá í fréttinni hér að neðan: Í d...
Veita ekki við­töl eftir ríkis­stjórnar­fund - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Veita ekki við­töl eftir ríkis­stjórnar­fund - Vísir
Ríkisstjórnin fundar alla þriðjudaga og föstudaga. Að fundi loknum er venjan að fjölmiðlar fái viðtöl við ráðherra en það hefur reynst erfitt að hitta...
„Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarn­freðar­son!“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarn­freðar­son!“ - Vísir
Útvarpskonan á FM957 segist enda vera algjör alæta á íslenskt sjónvarpsefni, hvort sem um er að ræða nýja þætti, nostalgíu, grín og glens eða íslensk ...
Skólahjúkrunarfræðingar hefja skimun fyrir ofbeldi
📅 25.09.2026 👁️ 2
Skólahjúkrunarfræðingar hefja skimun fyrir ofbeldi
Heilbrigðisráðherra segir ofbeldi gegn börnum samfélagsmein. Skimun fyrir ofbeldi hefst í grunnskólum landsins í október og ný ofbeldismóttaka barna v...
Vilhjálmur hefur áhyggjur: „Sem næst 0%!“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vilhjálmur hefur áhyggjur: „Sem næst 0%!“
Vilhjálmur Bjarnason, fjárfestir og fyrrverandi þingmaður, segir að mikið verk sé að ríkisstjórn og atvinnulífið að skapa tækifæri fyrir ungt fólk eft...
Tvö fengu átta ára dóm fyrir að smygla 18 kílóum af kókaíni
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tvö fengu átta ára dóm fyrir að smygla 18 kílóum af kókaíni
Jose Manuel Del Bosque og Cristina Rodriguez Santos voru í gær dæmd til átta ára fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Rúmlega 18 kíló af kó...
Noah Woods died after leaving park through gap in fence, inquest hears
📅 25.09.2026 👁️ 2
Noah Woods died after leaving park through gap in fence, inquest hears
An inquest is told the three-year-old's body was found among submerged tree roots.
Robbie Williams' surprise singalong after Peru gig cancelled
📅 25.09.2026 👁️ 2
Robbie Williams' surprise singalong after Peru gig cancelled
Robbie Williams gave an impromptu performance outside a hotel in Lima after his stadium concert was cancelled.
Fjölskyldurnar eiga 60 milljónir og skulda 15
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fjölskyldurnar eiga 60 milljónir og skulda 15
Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra...
Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15
Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra...
Bjarni Ben hæstánægður með Pétur á Garðatorgi – „Snillingur!“
📅 25.09.2026 👁️ 3
Bjarni Ben hæstánægður með Pétur á Garðatorgi – „Snillingur!“
„Þegar maður fær alveg hreint framúrskarandi þjónustu vaknar eiginlega skylda hjá manni að vekja athygli á því og þakka fyrir sig,“ segir fyrrverandi ...
Holmes flutt á áfangaheimili - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Holmes flutt á áfangaheimili - Vísir
Dagblaðið Guardian greinir frá.  Holmes var dæmd í meira en ellefu ára fangelsi árið 2022 fyrir að svíkja fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. ...
Sveinn Andri gefur útspilinu falleinkunn: „Kýs að ausa fyrrum samherja sína óhróðri“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn Andri gefur útspilinu falleinkunn: „Kýs að ausa fyrrum samherja sína óhróðri“
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson segir að Guðmundur Ingu Kristinsson, fyrrverandi ráðherra Flokks fólksins, hafi berað sig algjörlega og hafi komið ...
Setja tak­markanir á fjölda er­lendra nem­enda í bekk - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Setja tak­markanir á fjölda er­lendra nem­enda í bekk - Vísir
Haft er eftir Giuseppe Valditara, menntamálaráðherra Ítalíu, í grein ítalska miðilsins Ansa að takmarkanirnar séu gerðar til að forðast „gettóbekki“ í...
Banna búrkur og níkab - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Banna búrkur og níkab - Vísir
Haft er eftir Giuseppe Valditara, menntamálaráðherra Ítalíu, í grein ítalska miðilsins Ansa að takmarkanirnar séu gerðar til að forðast „gettóbekki“ í...
Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt al­veg rétt frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt al­veg rétt frá - Vísir
Hann segir „vík milli vina“ Guðmundar Inga og Ingu Sæland og þess vegna verði málið dramatískt. Guðmundur Ingi hafi fylgt henni eins og skugginn í um ...
Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu
Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu Vaðstígur 3 Snyrtilegt 40 fermetra hús við Vaðstíg 3 í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið...
TUI increases flights to the Canary Islands for summer 2027
📅 25.09.2026 👁️ 2
TUI increases flights to the Canary Islands for summer 2027
TUI has announced an increase in flights to the Canary Islands for summer 2027, adding capacity to Tenerife South airport, and additional services to ...
Endur­skoða samning SÁÁ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 3
Endur­skoða samning SÁÁ - Vísir
Töluvert hefur gengið á hjá SÁÁ eftir að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. Í kjölfarið tilkynntu Valge...
Vilja tryggja skil milli stjórnar SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vilja tryggja skil milli stjórnar SÁÁ og heilbrigðisþjónustunnar
Til umræðu er að skipa nýja þriggja til fimm manna stjórn yfir þá heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir. Stjórnin á að tryggja fagleg gæði og góða stjórn...
Endurskoða samninginn um heilbrigðisþjónustu SÁÁ
📅 25.09.2026 👁️ 2
Endurskoða samninginn um heilbrigðisþjónustu SÁÁ
Til umræðu er að skipa nýja þriggja til fimm manna stjórn yfir þá heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir. Stjórnin á að tryggja fagleg gæði og góða stjórn...
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin - Vísir
Upplýsingar um framkvæmdir sem þessar og samninga sem þeim tengjast eru ríkisleyndarmál en rússneskum blaðamönnum BBC tókst að koma höndum yfir ýmis g...