Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat í sæti Íslands meðan Netanjahú flutti ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Sendinefndir fjölda ríkja gengu út undir ræðunni og mikil mótmæli voru í New York vegna veru Netanjahús á þinginu.
„Ísland, eins og önnur norræn ríki, hefur sæti landsins ávallt mannað í umræðum í ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna,“ segir í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins til fréttastofu.
Í svarinu segir enn fremur að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hafi ekki verið í salnum þegar Netanjahú flutti ræðu sína. Hún hafi verið á viðburði um stuðning við Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, sem var á sama tíma. Þorgerður Katrín tók sömuleiðis þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausn fyrr um daginn.
Fjölmargir söfnuðust saman við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York til að mótmæla framferðis Ísraels á Gaza og veru Netanjahús á allsherjarþinginu. Lögregla skarst í leikinn og handtók mótmælendur.