Heilbrigðisráðherra segir ofbeldi gegn börnum samfélagsmein. Skimun fyrir ofbeldi hefst í grunnskólum landsins í október og ný ofbeldismóttaka barna var opnuð í ágúst.
Verkefnin eru meðal 25 aðgerða til að bregðast við ofbeldi gegn börnum og meðal barna sem stjórnvöld boðuðu haustið 2024 og kynntu á vordögum 2025.
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum fari fyrst og fremst fram hjá skólahjúkrunarfræðingum.
„Þannig að við erum að nota verkfæri sem er til, samtal heilbrigðisstarfsmanns við börnin í umhverfi sem þau þekkja, í umhverfi þar sem þeim finnst þau vera örugg,“ segir Alma.
Verkefnið var prófað í fimm skólum í vor og verður fyrst um sinn skimað meðal barna í 7. og 9. bekk. Alma segir að líklega verði það stækkað og nái til fleiri bekkja síðar.
„Þetta prufuverkefni er búið og niðurstöðurnar þar voru að 14% barna tjáðu að þau hefðu orðið fyrir ofbeldi og 4% að það hefði verið nýverið,“ segir Alma.
Hún segir mikilvægt að vel skilgreint ferli taki við þegar börn greina frá ofbeldi.
Þverfaglegt teymi og ofbeldismóttaka
„Það er hægt með þessum snemmtæku íhlutunum, að veita fólki tækifæri til úrvinnslu í heilbrigðiskerfinu og viðeigandi meðferð, þá er hægt að koma í veg fyrir þessi langvinnu áhrif.“
Þverfaglegt ofbeldis- og áfallateymi barna tók til starfa á Landspítalanum síðasta vetur og ofbeldismóttaka fyrir börn var opnuð á Barnaspítalanum í ágúst. Alma segir að börn geti komið á ofbeldismóttökuna úr mismunandi áttum, svo sem úr heilbrigðiskerfinu og úr skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum.
Til stendur að flytja ofbeldismóttökuna í Bryndísarhlíð þegar húsnæðið er tilbúið.
„Þarna verður miðstöð fyrir þolendur áfalla og ofbeldis. Þarna verður miðstöð bæði fyrir börn og fullorðna en líka móttaka fyrir börn. Við ætlum að byggja þarna upp þjónustu- og þekkingarsetur á sviði ofbeldis og áfalla.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Ölmu í spilaranum hér að neðan.