Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

Snyrtilegt 40 fermetra hús við Vaðstíg 3 í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið sett á sölu. Eigninni fylgir 9.300 fermetra eignarlóð og er ásett verð 35 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 2020 og stendur á rúmgóðri lóð sem er skráð sem íbúðarhúsalóð. Af eigninni er fallegt útsýni og við húsið er pallur ásamt heitum potti. Þá stendur lítið útihús á lóðinni og hitaveita er á svæðinu.
Þrátt fyrir að húsið sé aðeins 40 fermetrar er þar að finna helstu rými sem þarf til búsetu. Eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið alrými. Í eldhúsinu er hvít innrétting, helluborð og ofn, auk þess sem borðkrókur er við glugga.
Úr alrýminu er gengið beint út á pallinn framan við húsið. Svefnherbergið er með gluggum á tvo vegu og á baðherberginu er sturta, salerni og vaskinnrétting. Þar er jafnframt aðstaða fyrir þvottavél.
Það sem helst vekur athygli við eignina er stærð lóðarinnar. Hún er 9.300 fermetrar, eða tæplega einn hektari, og því ríflega 230 sinnum stærri en húsið sjálft.
Ásett verð er 35 milljónir króna, sem jafngildir 875 þúsund krónum á hvern fermetra hússins.