Til umræðu er að skipa nýja þriggja til fimm manna stjórn yfir þá heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir. Stjórnin á að tryggja fagleg gæði og góða stjórnhætti.
Þetta er hluti af samkomulagi Sjúkratrygginga og SÁÁ um endurskoðun á samningi sem þau gerðu um reksturinn í desember í fyrra. Ráðist verður í endurskoðunina vegna þeirrar miklu ólgu sem ríkt hefur innan stofnunarinnar og óvissu sem hún hefur leitt af sér.
Skilja á milli félagsstjórnar og stjórnar spítalans
Markmiðið með samkomulaginu er að styrkja ákvæði í samningnum um stjórnarhætti þannig að tryggt verði að armslengd sé milli félagasamtakanna SÁÁ og faglegrar stjórnunar á þeirri heilbrigðisþjónustu sem veitt er í nafni samtakanna.
„Umræddar breytingar geta m.a. falist í því að skipa sérstaka 3-5 manna stjórn yfir heilbrigðisþjónustunni sem verði að meirihluta skipuð óháðum aðilum sem hafi það hlutverk að tryggja fagleg gæði og góða stjórnarhætti,“ segir í sameiginlegri tilkynningu Sjúkratrygginga og SÁÁ.
„Sjúkratryggingar og SÁÁ munu hafa samráð um skipunina. Framkvæmdastjórn SÁÁ mun samkvæmt þessu fyrirkomulagi gegna hlutverki eiganda heilbrigðisþjónustunnar og taka þátt í að móta almennar áherslur hennar í samráði við stjórn.“
Í tilkynningunni segir að hlutverk lykilstjórnenda og lykilsérfræðinga verði skýrð og þær kröfur sem gerðar verða til þeirra mótaðar með skýrum hætti.
Styr um starfsemina
Styr hefur staðið um heilbrigðisstarfsemi SÁÁ undanfarnar vikur. Forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga sögðu upp störfum vegna ágreinings við stjórn samtakanna, sem sökuð var um afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi. Minnst þrír starfsmenn Vogs fóru í veikindaleyfi eftir að aðalstjórn SÁÁ lýsti fullum stuðningi við framkvæmdastjórn.
Embætti landlæknis gaf samtökunum frest til að greiða úr sínum málum ellegar yrði gripið inn í starfsemina. Þá gáfu Sjúkratryggingar Íslands SÁÁ frest til að auka afköst á Sjúkrahúsinu Vogi í samræmi við samning þeirra á milli.